Árlega halda sveitarstjórnarmenn á Íslandi landsþing undir merkjum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á morgun þann 23. mars höldum við landsþing á Hótel Natura (Loftleiðir). Þingið hefst kl. 9:30 og stendur allan daginn. Öll 75 sveitarfélögin á Íslandi eiga sína fulltrúa á landsþingum og alltaf er góð mæting.
Lýðræðismál, efling sveitarstjórnarstigsins og notendastýrð persónuleg aðstoð eru meginefni þingsins að þessu sinni. Við þurfum að ræða íbúalýðræði í samhengi við breytingar á sveitarstjórnarlögum og fleira sem er að gerast. Það er ekki allt sem sýnist í þessum málum og oft er umræðan á villigötum.
Í setningarræðu minni á morgun mun ég koma inn á þessu meginefni þingsins en einnig ræða tónlistarskólamálin sem við héldum að við hefðum leyst með samningi við ríkisstjórnina 13. maí í fyrra. Svo reyndist ekki vera því þrátt fyrir hátimbraðar yfirlýsingar fjögurra ráðherra við undirritunina fylgir hugur ekki máli. Fljótlega kom í ljós að endurskoða þurfti forsendur samningsins eins og rætt var um í aðdraganda hans og á undirritunardegi. Þá muna ráðherrarnir skyndilega ekki neitt.
Meira um þetta allt á landsþinginu og svo hugsanlega hér á síðunni seinna.
Rita ummæli
Þú verður að vera innskráð/ur til að rita ummæli.