Á þessum degi þegar það mun skýrast að hluta til hversu vel Alþingi og Íslendingum mun takast að gera upp hrunið skulum við ekki gleyma því hvaðan við komum og hvað gerðist hér á landi fram til dagsins í dag. Ég hef af því tilefni sett in tengla á tvö video sem heita „Gleymum ekki upphafinu – Borgin Gamlársdag 2008“ og „Gleymum ekki upphafinu – Útrásin.“ Íslenskt samfélag hefur gengið í gegnum nægar hremmingar og nú bera stjórnmálamennirnir ábyrgð á því að næstu skref verði skref heilunar en ekki frekari sundrungar.
Nýlegar athugasemdir