Eins og fram kemur í bók Guðna Th. Jóhannessonar um ævi Gunnars Thoroddsen er pólitísk arfleifð Sjálfstæðisflokksins hroðaleg þegar kemur að persónunjósnum og virðist flokkurinn hafa gengið ótrúlega langt í að reyna að koma hér á einhvers konar ógnarstjórn þar sem atvinna og lífsafkoma fólks átti að byggjast á þjónkun þeirra til viðhorfa Sjálfstæðisflokksins. Málið var tekið upp á Alþinig í gær undir liðnum Störf þingsins þar sem Þráinn Bertelsson hóf umræðuna. Sjálfur tók ég undir með Þráni með nokkuð afgerandi hætti.
Álit mitt má sjá hér og álit Þráins má sjá hér og svo hér. Hjáróma viðbárur nokkurra sjálfstæðismanna má svo hlusta á hér og þar í dagsrárliðnum, en þær mótbárur voru eins og við var að búast.
Nýlegar athugasemdir