Í gær voru svo kallaðar Elhúsdagsumræður á Alþingi. Hef ekki hugmynd um hvaðan nafngiftin er komin en þessi liður er ætlaður til almennrar umfjöllunar um stjórnmálavettvanginn og störfin á Alþingi og er í beinni útsendingu á RÚV eins og umræðan um stefnuræðu forsætisráðherra sem er á hverju hausti. Ræðurnar voru misjafnar eins og gengur og gerist en hér eru ræðurnar sem við í Hreyfingunni fluttum.
Ræðan mín, Ræða Margrétar og Ræða Birgittu.
Eins og fram kemur finnst okkur enn vera mikið ógert varðandi uppgjör á Hruninu og sérstakleg sem snýr að fyrrum þingmönnum og ráðherrum Hrunstjórnarinnar. Það eru liðin tvö ár af þessu kjörtímabili og vonandi þurfa ekki að líða önnur tvö þar til kemur að kosningum.
Nýlegar athugasemdir