Umræðan um fjárlög næsta árs hófst í dag. Eins og undanfarin ár er um skattahækkanir (þó óverulegar) að ræða og niðurskurð eða stöðnun í útgjöldum. Á máli ríkisstjórnarinnar heitir þetta blönduð leið. Þessi leið hefur hins vegar ekki gengið upp og gerir ekki enn. Skuldirnar hækka og vaxtakostnaðurinn hækkar og nú er um 19% af öllum skatttekjum ríkissins sem fara bara í að greiða vexti af skuldunum. Þegar um fimmtungur tekna fer bara í vexti er einboðið að endar munu ekki ná saman og við höfum bent á það frá upphafi kjörtímabilsins að skuldastaða ríkissjóðs væri ekki sjálfbær og að það yrði að endursemja um frestun vaxtagreiðslna og niðurfellingu skulda. Hvað um það, hér er tengil á ræðu mína um fjárlögin í dag. Góðar stundir.
Nýlegar athugasemdir