Það þykir sjálfsagt að barnaníðingar séu afhjúpaðir í fjölmiðlum (og ég er ekki að mótmæla því hér, þótt ég efist um að það sé skynsamlegt að útskúfa þeim algerlega úr mannlegu samfélagi). En einhver versti yfirhylmari barnaníðs í heiminum í margra áratugi gengur ennþá laus. Hann hefur aldrei verið dæmdur, þótt hann hafi forðað fjölda níðinga undan réttvisinni og gert þeim kleift að halda uppteknum hætti með því að flytja þá á nýjar slóðir. Hann hefur aldrei beðist fyrirgefningar á eigin framferði, og ekki er að sjá að hann iðrist. Þessi maður er beint og óbeint hylltur í fjölmiðlum, og alveg sérstaklega þessa dagana.
Hvur er það sem um er rætt?
Hann hefur gengið með tilkomumikið höfuðfat á undanförnum árum, en er að láta hattinn ganga þessa dagana.
Þetta grunaði mig.
Svarað StefánP spurningu þinni, Hella?
Jebb.
‘Eg held að ég viti hvern þú átt við,en ég þori ekki að segja hver ef það skyldi vera rangt !
Hér er verið að tala um páfann í Róm …