Færslur fyrir mars, 2011

Miðvikudagur 30.03 2011 - 23:51

Opið bréf til Róberts Marshall

Sæll Róbert. Ég ætla ekki að tjá mig um þessa frétt í sjálfri sér:  http://eyjan.is/2011/03/30/milljardamaeringar-vilja-islenskt-rikisfang-ekki-sagdir-asaelast-audlindir/ Hún er hins vegar tilefni þess að mig langar að spyrja þig hvort þú þekkir til máls Jussanam Dejah, sem  búið hefur lengi og unnið á Íslandi, en missti dvalar- og atvinnuleyfi sitt þegar hún skildi við íslenskan mann sinn. […]

Þriðjudagur 29.03 2011 - 16:12

Auk þess legg ég til …

… að gerð verði vönduð úttekt á því hvernig OR gat breyst úr stöndugu fyrirtæki, með pottþéttar og fyrirsjáanlegar tekjur, í að vera nánast gjaldþrota.

Sunnudagur 13.03 2011 - 17:54

Tryggvi Þór kastar grjóti úr glerhöllinni

Í bloggpistli í dag varar Tryggvi Þór Herbertsson við fólki sem „hljómar eins og hagfræðingar“.  Ég held að slíkt fólk sé upp til hópa mun hættuminna en þeir „alvöru“ hagfræðingar sem, eins og Tryggvi,  bæði spiluðu með í bóluhagkerfinu og lýstu í sífellu yfir hvað það væri traust.  Tryggvi bítur höfuðið af skömminni með því að […]

Mánudagur 07.03 2011 - 14:28

Gráðugir bankastjórar — máttlaus forsætisráðherra

Af hverju dettur fólki í hug að borga  íslensku bankastjórunum svona há laun?  Skýring varaformanns stjórnar Arionbanka í hádegisfréttum RÚV í dag var engin skýring, nefnilega að það hefði þurft að borga svona mikið til að ráða þennan mann.  Spurningin er hvort það ætti ekki að leggja blátt bann við því að ráða í bankastjórastöðu […]

Sunnudagur 06.03 2011 - 23:52

Besta kaffi á Íslandi

Það var stórkostleg framför þegar farið var að brenna gott kaffi á Íslandi, og gera það vel, eins og sumar af litlu kaffibrennslunum með metnað gerðu í upphafi, í kringum 1990.  Það var sorglegt að sú kaffibrennsla sem náði undirtökunum á markaðnum (Kaffitár) og sem átti drýgstan þátt í að stórbæta kaffimenninguna hér, skyldi á […]

Miðvikudagur 02.03 2011 - 11:36

Sorphirða, sparnaður og heimska

Borgarstjórn Reykjavíkur ákvað nýlega að krefjast sérstakrar greiðslu fyrir sorphirðu í þeim húsum þar sem meira en 15 metrar eru að sorptunnunum frá þeim stað sem sorpbílarnir komast næst.  Uppgefin ástæða er sparnaður, þ.e.a.s. útgjaldaminnkun hjá borginni. Almennt séð er sjálfsagt að borgin innheimti gjöld fyrir þann kostnað sem hún verður fyrir vegna þjónustu við […]

Þriðjudagur 01.03 2011 - 15:21

Alþingi, Ástráður og valdahrokinn

Í hádegisfréttum útvarps í dag sagði Ástráður Haraldsson að það væri eðlilegt að hann tæki aftur sæti í Landskjörstjórn, af því að hann nyti trausts Alþingis.  Hann minntist ekki á að þetta sama Alþingi nýtur trausts um tíu prósenta þjóðarinnar, og því er traustsyfirlýsing þess engin yfirlýsing um traust þeirra sem þurfa að treysta honum, […]

Höfundur

Einar Steingrímsson
Nánar um höfund ...
RSS straumur: RSS straumur