Færslur fyrir janúar, 2014

Föstudagur 31.01 2014 - 14:30

Saksóknari, Hanna Birna og Vítisenglar

Eftirfarandi bréf var ég að senda ríkissaksóknara (Sigríði Friðjónsdóttur), með spurningum vegna „rannsóknar“ hennar á lekamálinu í innanríkisráðuneytinu. Auk þess sem þar er spurt má velta fyrir sér hvort það skipti máli hér að ríkissaksóknari (og lögreglan, sem hefur ekki aðhafst þrátt fyrir kærur) sé undirmaður ráðherrans, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur.  Vissulega á ráðherra ekki að […]

Þriðjudagur 28.01 2014 - 11:49

Jóhanna Vigdís og systir hennar

Í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi var fjallað um lekamálið í innanríkisráðuneytinu.  Fréttin var kynnt með þessum orðum í upphafi fréttatímans, nokkurn veginn eins og ætla mætti að ráðherrann Hanna Birna hefði sjálf samið innganginn: „Innanríkisráðherrann grunar að umræða um meintan leka á persónuupplýsingum snúist ekki um hælisleitandann heldur um eitthvað allt annað, eins og að koma höggi á hana […]

Sunnudagur 26.01 2014 - 12:14

Björn Ingi að ritskoða Eyjuna?

Í gærkvöldi lenti ég í athyglisverðu atviki í athugasemdakerfinu við þennan pistil Egils Helgasonar á Eyjunni.  Það byrjaði með því að ég skrifaði ummæli þar sem ég talaði um heimsku og hroka sem þætti í persónuleika Einars K. Guðfinnssonar, forseta Alþingis.  Skömmu síðar gerði Facebook-notandi sem kallar sig „Eyjan“ eftirfarandi athugasemd við það sem ég […]

Fimmtudagur 23.01 2014 - 10:15

Er Gísli Freyr Valdórsson sá seki?

Fyrir tæpum tveim mánuðum skrifaði ég innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, og ráðuneytisstjóranum Ragnhildi Hjaltadóttur, og spurði um tilurð og dreifingu minnisblaðs sem fjallað var um í þessum pistli og sem mikið hefur verið í fréttum undanfarna mánuði.  Ég fékk „svar“ daginn eftir frá Ragnhildi, en það var bara útúrsnúningar og engu svarað af því sem ég […]

Þriðjudagur 21.01 2014 - 10:15

Vondir háskólar, viljalaus stjórnvöld

[Breytt kl. 21:58, 7. apríl 2015:  Mér hefur verið bent á að staðhæfing mín í þessum pistli um samband Háskóla Íslands og forstjóra Hjartaverndar, sé röng. Ég vil ekki breyta pistlinum svo löngu eftir að hann er skrifaður, en set athugasemd við þetta í honum sjálfum líka. Og biðst hér með afsökunar á þessu ranghermi […]

Miðvikudagur 08.01 2014 - 10:00

Vinnur Gylfi Arnbjörnsson fyrir SA?

Í Kastljósi í gærkvöldi byrjaði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, á því að útskýra að Samtök atvinnulífsins hefðu í upphafi viðræðna um nýgerða kjarasamninga lýst yfir að þau vildu ekki meira en 2% launahækkun, og Gylfi talaði eins og það hefði gert samningana erfiða.  Gylfi endurtók þessa möntru nokkrum sinnum í þættinum, í svolítið mismunandi formi. […]

Höfundur

Einar Steingrímsson
Nánar um höfund ...
RSS straumur: RSS straumur