Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrum alþingismaður og núverandi flokksstjórnarmeðlimur í Samfylkingunni, skrifaði pistil um stjórnarskrármálið á Eyjuna í gær. Þar reynir hún að verja afstöðu formanns Samfylkingarinnar í málinu, en hann vildi sem kunnugt er „semja“ við Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk um að málinu yrði haldið áfram á næsta þingi, fremur en að afgreiða það fyrir þinglok í […]
Eftirfarandi póst sendi ég Árna Páli Árnasyni, formanni Samfylkingarinnar, í gærkvöldi. ______________________________________________________________________ Sæll Árni Páll Nú hafa 32 þingmenn lýst yfir að þeir vilji samþykkja nýja stjórnarskrá á þessu þingi. Að vísu veit ég ekki hvort Kristján Möller er kominn aftur á þing og varamaður hans farinn út, en sé svo vantar hvort sem er […]
Samkvæmt þessari síðu hafa nú 30 þingmenn lýst yfir að þeir styðji stjórnarskrárfrumvarpið. Það þýðir að einungis þarf tvo í viðbót til að frumvarpið verði samþykkt, þótt allir aðrir greiði atkvæði gegn því. Á já-listann vantar bæði Árna Pál Árnason formann Samfylkingarinnar og Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur þingforseta. Þegar Árni talar um að ekki sé hægt […]
Eftirfarandi póst sendi ég Katrínu Jakobsdóttur, ráðherra og formanni VG, fyrr í dag. _______________________________________________ Sæl Katrín Sé það rétt, sem sagt er í þessari frétt, http://eyjan.pressan.is/frettir/2013/03/06/stjornarflokkarnir-reyna-ad-skera-a-hnutinn-i-stjornarskrarmali-ny-tillaga-logd-fram-i-dag/, þá er það ljótt að heyra: Formaður Samfylkingarinnar leggur fram á Alþingi í dag ásamt Katrínu Jakobsdóttur formanni VG og Guðmundi Steingrímssyni formanni Bjartrar framtíðar frumvarp til breytingar á stjórnarskrá […]
Allir þingmenn vita að hendur næsta Alþingis verða ekki bundnar á nokkurn hátt (umfram það sem gildandi stjórnarskrá gerir hverju sinni). Þess vegna er varla hægt að líta á það sem annað en einskæra lygi þegar Magnús Orri Schram heldur fram að hægt sé að „kveða á um“ annað eins og hann gerir hér: Málamiðlun […]
Því hefur verið haldið fram að ekki sé „hægt“ að koma stjórnarskrárfrumvarpinu gegnum þingið. Þetta er rangt; það snýst um vilja. Þeir þingmenn sem helst eru nefndir sem líklegir til að standa í vegi fyrir málinu innan Samfylkingarinnar eru Ásta Ragnheiður þingforseti, Össur og Kristján Möller. Svo vel vill til að sá síðastnefndi mun verða […]
Margt innanbúðarfólk í Samfylkingunni sem reynt hefur að verja fótaskot formannsins síðustu sólarhringa hefur haldið fram að það sé einfaldlega ekki meirihluti fyrir því á þingi að samþykkja nýja stjórnarskrá. Karl Th. Birgisson sem gjarnan tjáir sig um slík mál eins og hann viti meira en almennt er þekkt (en tilheyrir þeim málefnalega veikburða hópi […]
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sagði í gær að ekki væri hægt að koma nýrri stjórnarskrá í gegnum þingið fyrir kosningar. Margir hafa orðið æfir yfir þessu, þar á meðal sumt flokksbundið Samfylkingarfólk. Flestir stuðningsmenn flokksins virðast hins vegar algerlega ráðvilltir, þótt sumir reyni af veikum mætti að bera í bætifláka fyrir formanninn, en nokkrir […]
Stjórnarflokkarnir hafa þegar svikið illilega í kvótamálinu. Nú virðist endanlega ljóst að þeir ætli líka að svíkja í stjórnarskrármálinu. Náðarhöggið veitti Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sem þar með sýnir hvað vakir fyrir honum með yfirlýsingum um að láta af „tilgangslausu stríði“ í pólitíkinni. Hann ætlar að „ræða málið við formenn annarra stjórnmálaflokka“. Allir vita hver […]
Athygli mín var um daginn vakin á sérkennilegri auglýsingu um lausa stöðu við Háskóla Íslands. Sá sem benti mér á hana þóttist sjá á augabragði að búið væri að ákveða hvern ætti að ráða í viðkomandi stöðu. Það sem er sérkennilegt við auglýsinguna, um stöðu „lektors í sagnfræði á sviði miðaldasögu á tímabilinu frá landnámi […]