Samkvæmt þessari frétt hefur Ástráður Haraldsson átt í deilum við skilanefnd Glitnis um hundruða milljóna viðskipti vegna framvirkra samninga með skuldabréf Kaupþings. Það gerir Ástráð augljóslega óhæfan til að skrifa álitsgerðir fyrir Fjármálaeftirlitið. Því ætti stjórn FME að henda í snarhasti skýrslunni sem Ástráður skrifaði um forstjóra FME. Vegna þessara alvarlegu mistaka, og þess fárviðris […]
Nýlega var Snorri í Betel sendur í launað leyfi úr starfi sínu sem kennari, vegna bloggpistils sem hann birti. Hafi ég skilið rétt var það vegna eftirfarandi orða: „Kjarninn í sjónarmiði evangelískra er sá að samkynhneigðin telst vera synd. Syndin erfir ekki Guðs ríkið og því óæskileg. Laun syndarinnar er dauði og því grafalvarleg.“ Mér […]
Síðustu daga hafa farið fram svolitlar umræður á bloggsíðu Vilhjálms Þorsteinssonar, og á minni bloggsíðu, um húsnæðisskuldir, framferði bankanna og kröfuhafana eigendur þeirra, sem og ræningjakapítalisma. Það er gott að ræða þessi mál, og velta upp ýmsum hliðum og möguleikum. En, ég held að það geti tekið áratugi að græða þau samfélagslegu sár sem hrunið […]
Vilhjálmur Þorsteinsson skrifaði bloggpistil í gær um niðurfærslu lána, þar sem hann kemst í aðalatriðum að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að fara í neinar róttækar aðgerðir, en leggur til mildari aðgerðir á lengri tíma. Þetta er ágætis pistill að því leyti að Vilhjálmur færir ítarleg rök og gögn fyrir máli sínu, og því […]
Eftirfarandi var haft eftir Oddnýju Harðardóttur fjármálaráðherra í kvöldfréttum RÚV: „Það er nauðsynlegt fyrir okkur að nýta okkur okkar orkuauðlindir til þess að að halda hér uppi velferð í landinu“, sagði Oddný og bætti því við að hún vissi ekki hvort það yrði byrjað að virkja í neðri hluta Þjórsár fljótlega, … Iðnaðarráðherra segir að […]
Talsvert hefur verið fjallað um mál Mohammeds Lo, rúmlega tvítugs manns sem flúði frá Máritaníu, þar sem hann hafði verið þræll alla ævi, og kom til Íslands fyrir rúmu ári. Í þessum pistli er saga hans rakin í aðalatriðum. Eins og fram hefur komið var Mohammed synjað um hæli á Íslandi, og ákveðið að hann […]
Í opinberri umræðu um flókin mál er oft gott að fá sérfræðinga sem skýrt geta hluti sem ekki liggja í augum uppi fyrir leikmönnum. Sé vel að slíku staðið er þá oft hægt að lyfta umræðunni á hærra plan, þegar við leikmennirnir höfum áttað okkur á grundvallaratriðum sem ekki voru á hreinu og flæktu því […]
Í þessari frétt stendur meðal annars: Bankaráð Landsbankans og skilanefnd gamla Landsbankans leggjast bæði gegn því að Kjararáð ákveði laun bankastjórans. Því segir í umsögn bankaráðs, að ekki sé ólíklegt að bankastjórinn bregðist við með því að laga afköst sín að því sem hann telur samræmast launum sínum, eða segi hreinlega upp störfum. Hefur þetta […]
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ekki haft sig í frammi varðandi þann skuldavanda sem stór hluti íslenskra heimila er að kikna undir (og sem stafar af því að bankarnir hafa fengið að mergsjúga skuldarana í skjóli ríkisstjórnarinnar, sem neitar að taka verðtrygginguna úr sambandi, hvað þá að færa niður stökkbreyttu lánin). Ögmundur virðist heldur ekkert hafa […]