Björn Ingi Hrafnsson er nýlega orðinn einn af eigendum Eyjunnar. Hann er líka stjórnarformaður Eyjunnar og einnig Vefpressunnar, sem er eigandi Eyjunnar, Pressunnar og fleiri vefmiðla. Auk þessa titlar Björn sig „útgefanda“ Eyjunnar. Það er ekki alveg nýtt á Íslandi, því Óskar Magnússon tók sér þennan titil á Morgunblaðinu skömmu áður en Davíð Oddsson var […]
Þorsteinn Már Baldvinsson varð milljarðamæringur á kvótakerfinu, í boði þjóðarinnar. Hann var stjórnarformaður Glitnis í hálft ár áður en bankinn var yfirtekinn af ríkinu, og starfsemi þess banka kostaði þjóðina tugi eða hundruð milljarða, ekki síst vegna þeirra blekkinga og svika sem stunduð voru á meðan Þorsteinn bar ábyrgð á bankanum. Þrátt fyrir þetta hefur […]
Bæði Ingibjörg Sôlrún Gísladóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vilja banna konum að klæðast búrkum á Íslandi. Þorgerður virðist telja að slíkt bann sé í lagi af því að búrkur falli ekki að íslenskri menningu, sjá hér. Ingibjörg er svolítið almennari, og talar um bann við að fólk hylji andlit sitt, af því að „við þurfum líka […]
Það er að bera í bakkafullan læk að gagnrýna forystu Samtaka Atvinnulifsins. En vegna þess hvers konar forarvilpu forysta þeirra samtaka reynir að búa til með áróðri sínum veitir ekki af að viðhalda sírennsli af fersku vatni yfir hana, og þá er betra að ferska vatnið flói út fyrir en eiga á hættu að forin […]
Í gær birtist á Eyjunni grein eftir Jón Guðmundsson blaðbera á Selfossi. Hún fjallar um Nímenningamálið, og er svo þörf upprifjun að ég get ekki stillt mig um að birta glefsur úr henni hér að neðan. En, lesið sjálf þessa fínu grein; hún er hér. Það hlýtur að vera í fyrsta skipti í ritaðri sögu […]
Fyrsta fréttin í útvarpi RÚV í kvöld (og hluti af fyrstu frétt sjónvarps RÚV) fjallaði um hvernig bregðast bæri við úrskurði Hæstaréttar sem ógilti kosninguna til Stjórnlagaþings. Nánar tiltekið fjallaði þessi langa aðalfrétt um skoðun eins manns úti í bæ á þessu efni. Þessi maður sem fenginn var til að kynna skoðanir sínar svona rækilega […]
Magnús Orri Schram skrifar grein í Fréttablaðið í dag um einkarekstur og orkuauðlindir. Ekki er ljóst hvort hann lýsir hér stefnu Samfylkingarinnar, en gott væri að fá það á hreint. Rétt er að taka fram í upphafi að undirritaður er fylgjandi einkarekstri í atvinnulífinu hvar sem hann virkar vel, en alls ekki þar sem hagsmunum […]
Alvarlegar fréttir dynja á landsmönnum þessa dagana. Í ónotuðu herbergi í Alþingishúsinu fannst tölva, sem enginn kannast við að eiga. Á henni fannst ekkert; hún var tóm, nema hvað á henni voru fingraför sem tilheyra starfsmanni þingsins. Því þykir ljóst að einhver allt önnur manneskja hljóti að hafa komið henni fyrir í húsinu, og augljóslega […]
Sé rétt eftir haft í þessari frétt er ekki annað að sjá en að Lára V. Júlíusdóttir lifi í allt öðrum veruleika en þeim sem flestir Íslendingar þekkja, jafnvel þeir sem lítið telja athugavert við að réttað sé yfir Nîmenningunum. Nánast enginn hefur treyst sér til, eða talið ástæðu til, að verja þá ákvörðun Láru […]
Sæl Jóhanna. Sá að þér finnst dapurlegt að verið sé að rétta yfir fólki sem hefur víst lítið til saka unnið annað en að taka þátt í tiltölulega friðsömum mótmælum í kjölfar hrunsins. Það er leiðinlegt að þú skulir vera svona döpur, en það er kannski huggun harmi gegn að það ættu að vera hæg […]