Fyrsta greiðslan vegna Icesave verður daginn eftir „Jáið“ þann 11. mars ef það verður já og verður rúmlega 26 milljarðar. Þetta er áfallnir vextir og koma aldei til baka þar sem vextir eru ekki forgangskröfur. Þetta eru peningar sem jafngilda öllum launakostnaði Landspítalans árið 2009 og fara beinustu leið úr landi og út úr hagkerfinu, þ.e. eru bein blóðtaka fyrir þjóðarbúið sem verður aðeins greitt með hærri sköttum á íslendinga.
Að taka 2o milljarða úr TIF sjóðnum fyrir þessu (Icesave) gerir það einfaldlega að verkum að ekkert verður eftir í honum fyrir öll hin fjármálafyrirtækin sem hrundu og munu því þurfa að fá fé beint frá skattborgurum. Það er bara verið að taka peninga úr einum vasa í stað annars á sömu buxunum. Þetta er því hluti af blekkingaráróðrinum um Icesave, að peningar í TIF sjóðnum gagnist Icesave eitthvað sérstaklega. Almenningur mun á endanum borga hvort sem það verður beint eða í gegnum TIF sjóðinn.
Nýlegar athugasemdir