Laugardagur 26.02.2011 - 14:17 - 3 ummæli

Saksóknari deilir við dómarann

Lára V. Júlíusdóttir,  saksóknari í Nímenningmálinu, hefur tjáð sig í fjölmiðlum.  Erlendis.  Sjá hér.

Það er margt athyglisvert sem hún segir, ekki síst vegna þess að hún staðhæfir hluti sem dómurinn tók af öll tvímæli um, og þvert á það sem hún heldur fram.  Meðal annars komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að sakborningar hefðu ekki valdið neinum meiðslum á þingvörðum, öfugt við það sem forseti Alþingis hafði haldið fram opinberlega, og einnig að meint brot þeirra gætu alls ekki átt við 100. grein hegningarlaga, því „með engu móti [yrði] talið að fyrir þeim hafi vakað að reyna að kúga Alþingi eða að athafnir þeirra geti talist vera sú árás á þingið að sjálfræði þess hafi verið hætta búin.“

En,  Lára þrjóskast við:

„What they [Rvk9] did was exactly what is described in article 100 of the penal code. They attacked the staff of parliament, forced their way into the parliament building and beat up the staff, some of whom got hurt.“

Það er margt fleira athugavert við það sem Lára segir, þ.á.m. rangfærslur um vanhæfi hennar, en ég læt hér við sitja.  Ég vona hins vegar að Lára komi aldrei aftur nálægt ákæru- eða dómsvaldi þessa lands, og að þeir sem öttu henni á foraðið, eða hvöttu hana a.m.k. með svívirðilegum og röngum yfirlýsingum um saklaust fólk, hafi lært þá lexíu að þeir reyni ekki aftur að beita dómsvaldinu til að berja niður tjáningarfrelsi borgaranna.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (3)

  • Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur

    Ísland er fúafen !!

  • Fréttir, fréttir: Manneskja sem búin er að eyða mánuðum í að sökkva sér ofan í aðra hlið tvíhliða rökræðu segir að hún sé sannfærð um að hún hafi rétt fyrir sér. Manneskja sem sökkti sér ofan í hina hliðina er ósammála.

    Hins vegar finnst mér mjög vafasamt að saksóknari sé að tjá sig um opinber mál eftir að dómur hefur gengið í þeim. Ertu viss um að þessar athugasemdir haf ekki verið fengnar hjá henni áður en dómur féll?

  • Einar Steingrimsson

    Páll J: Ég spurði blaðamanninn sem skrifaði umrædda grein í Fresh Outlook. Hún sagði mér að viðtalið við Láru hefði farið fram eftir að dómur féll.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og sjö? Svar:

Höfundur

Einar Steingrímsson
Nánar um höfund ...
RSS straumur: RSS straumur