Þriðjudagur 01.03.2011 - 15:21 - 3 ummæli

Alþingi, Ástráður og valdahrokinn

Í hádegisfréttum útvarps í dag sagði Ástráður Haraldsson að það væri eðlilegt að hann tæki aftur sæti í Landskjörstjórn, af því að hann nyti trausts Alþingis.  Hann minntist ekki á að þetta sama Alþingi nýtur trausts um tíu prósenta þjóðarinnar, og því er traustsyfirlýsing þess engin yfirlýsing um traust þeirra sem þurfa að treysta honum, almennings í landinu.  Auk þess er það skrípaleikur að segja af sér embætti og setjast í það aftur mánuði síðar.

Hér er enn og aftur kominn sá valdahroki sem Ísland þarf svo sárlega að losna við.  Stjórnvöld í lýðræðisríki eiga að þurfa traust almennings, þau eiga að sækja vald sitt til hans, og til þess eins að þjóna hagsmunum þessa sama almennings.

Það er ekki nóg að fólk í opinberum valda- og ábyrgðarstöðum njóti trausts hvert annars.  Að tala á þeim nótum lýsir nákvæmlega þeirri afstöðu sem íslenska valdaklíkusamfélagið byggir tilveru sína á.  Sú afstaða hefur meðal annars verið kölluð samtrygging og fjórflokkur, og ekki að ástæðulausu.

Ástráður Haraldsson er  ekki stærsta vandamálið í íslensku stjórnsýslunni.  En staðhæfing hans í dag er lýsandi fyrir verstu meinsemdina í íslensku stjórnmálalífi:  Þá hugmynd að ríkisvaldið sé til fyrir valdastéttina, en ekki þjónn almennings.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (3)

  • Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur

    http://www.dv.is/frettir/2011/3/1/radherra-segir-af-ser-vegna-ritstuldar/

    Minnumst þess að rektor Háskóla Íslands (sem ennþá ætlar sér topp 100 listann)
    sá ekki einu sinni ástæðu til þess að áminna HHG eftir að hann hafði verið dæmdur
    fyrir ritstuld við HÆSTARÉTT landsins.

    Ætti slíkur rektor ekki að sjá sóma sinn í því að segja af sér ?????

    Íslendingar virðast ekki hafa nein prinsipp.

    Er hugsanlegt að það sé ástæða efnahagshrunsins ??

    Bestu kveðjur, Sigmundur

  • Heyr, Heyr!!

    Þessi skipun er fráleit og móðgun við almenning.

  • Sammála her algjörlega fyrir neðan allt !

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af einum og sex? Svar:

Höfundur

Einar Steingrímsson
Nánar um höfund ...
RSS straumur: RSS straumur