Fimmtudagur 24.11.2011 - 15:53 - 6 ummæli

Svör útvarpsstjóra RÚV um LÍÚ-málið

Hér fara á eftir svör Páls Magnússonar útvarpsstjóra RÚV við fyrirspurn sem ég sendi honum og birti í þessum bloggpistli.  Þar á eftir kemur svar mitt til Páls.

Í stuttu máli tel ég enn að RÚV hafi gert slæm mistök og brugðist þeim almenningi sem stofnunin ætti að þjóna,  Ég tel að sú ritskoðun sem málið fjallar um stafi af inngrónu viðhorfi sem gerir ráð fyrir að núverandi valdahlutföll í þjóðfélaginu séu eðlileg, þar á meðal að sjálfsagt sé að voldug hagsmunasamtök fái að hafa sig í frammi eins og þeim þóknast, en að ekki sé jafn sjálfsagt að almennir borgarar fái að koma skoðunum sínum á framfæri.  Þetta er þeim mun erfiðara að fyrirgefa sem það ætti að vera öllum ljóst, í kjölfar hrunsins, að á Íslandi hefur þrifist margs konar spilling og valdníðsla, og að stofnanir á borð við RÚV ættu að vera sérstaklega á varðbergi gagnvart yfirgangi hagsmunaafla.

Í þessu ljósi eru það mikil vonbrigði að forysta RÚV ætli ekki að lýsa því opinberlega yfir að mistök hafi verið gerð, hvað þá að biðjast afsökunar á framferðinu.  Það bendir ekki til að þessi forysta ætli sér að læra af mistökunum og bæta ráð sitt.  Því miður.

—————————————————————————————–

From: Páll Magnússon <pall.magnusson@ruv.is>
Date: 2011/11/22
Subject: RE: Fyrirspurn um meðferð auglýsinga
To: Einar Steingrimsson <einar@alum.mit.edu>

Sæll Einar

Að sjálfsögðu muntu fá formlegt svar frá mér við erindi þínu – til viðbótar því sem markaðsstjóri RÚV sendi þér.

Í millitíðinni langar mig persónulega að biðja þig að hugleiða eftirfarandi – ekki síst vegna þess að mér hefur þótt þú hafa margt skynsamlegt til málanna að leggja í íslenskri þjóðfélagsumræðu, m.a. fyrir millgöngu RÚV:

Hér gætu verið uppi nokkur „friðsamleg“ álitamál, m.a. hvort munur sé á „íslenskir útvegsmenn“ og „borgari“ þegar metið er hvort þessi hugtök nægi sem auðkenni eða undirskrift auglýsenda, – hvort „útgerðaraðall“ geti verið hnjóðsyrði o.s.frv.  Á þessum álitaefnum geta menn haft ýmsar gildar skoðanir.

Að nota í þeirri umræðu orðaleppa á borð við „pólitísk ritskoðun á RÚV fyrir LÍÚ“ nú eða „svívirðileg framkoma“ af hálfu RÚV,  finnst mér hinsvegar vera óðaverðbólgin hugtakanotkun – og langt fyrir neðan þína virðingu, sem venjulega styður mál þitt einfaldlega skynsamlegum rökum. Hvað ætlarðu þá að kalla raunverulega „pólitíska ritskoðun“ þegar þú sérð hana? Og hvaða nafn ætlarðu að gefa raunverulega „svívirðilegri framkomu“ þegar þú mætir henni?

Með vinsemd og virðingu,

Páll Magnússon

—————————————————————————————–

From: Páll Magnússon <pall.magnusson@ruv.is>
Date: 2011/11/23
Subject: RE: Fyrirspurn um meðferð auglýsinga
To: Einar Steingrimsson <einar@alum.mit.edu>, „einar.steingrimsson@gmail.com“ <einar.steingrimsson@gmail.com>

Heill og sæll Einar

Upphaf þessa máls er að almennur starfsmaður á auglýsingadeild RÚV taldi að „íslenskir útvegsmenn“ væri nægjanlega skýrt auðkenni á þeim sem pantaði margumræddar auglýsingar, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, til að uppfylla áratuga langa hefð RÚV þess efnis að auglýsandinn sé auðkennanlegur. Sömuleiðis taldi almennur starfsmaður á auglýsingadeild RÚV að „borgari“ væri ekki nægjanlega skýrt auðkenni á Einari Steingrímssyni.

Um hið fyrra má vafalaust deila en varla hið síðara. Þetta umdeilanlega mat almenns starfsmanns hjá RÚV verður þér síðan m.a. tilefni upphrópana á opinberum vettvangi á borð við „pólitísk ritskoðun á RÚV fyrir LÍÚ“ og „svívirðileg framkoma“ af hálfu RÚV. Þótti sumum hér skorta nokkuð á hófsemd í orðavali af þessu tilefni.

Þessi álitamál urðu hins vegar til þess að yfirmenn á auglýsingadeild tóku umræddar auglýsingar til nánari skoðunar og komust að þeirri niðurstöðu að þær kynnu líka að varða við 3. og 4. tölulið 3. greinar í auglýsingareglum RÚV. Eftir samræður við auglýsandann var birtingum þeirra hætt. Aðdragandi og eðli þessa máls kallar hins vegar að mínu mati hvorki á opinbera yfirlýsingu né afsökunarbeiðni af hálfu RÚV, eins og þú ferð fram á í erindi þínu.

Varðandi lið 1. í erindi þínu er svarið þetta: Auglýsingu þinni er hafnað á grundvelli reglna RÚV um auglýsingar, sbr. 3. gr., 3. og 4. tölulið.

Ég vil að lokum þakka þér fyrir þessar umræður og ábendingar – að því marki sem þær byggja á skynsamlegum rökum en ekki upphrópunum og samsæriskenningum. Þær verða til þess að RÚV mun hraða þeirri endurskoðun á auglýsingareglum, sem þegar var hafin,  m.a. vegna nýrra fjölmiðlalaga. Af ábendingum þínum varð m.a. augljós sá annmarki að regluna um auðkenni á auglýsanda, sem hér innandyra þykir sjálfsögð og byggir á áratuga langri hefð, er hvergi að finna formlega og skriflega. Við munum nú að sjálfsögðu ráða bót á því.

Mér þætti svo vænt um að þetta svar mitt birtist í heilu lagi – ef þú ætlar að birta það á blogginu þínu.

Með vinsemd og virðingu,

Páll Magnússon
útvarpssjóri

—————————————————————————————–

From: Einar Steingrimsson <einar@alum.mit.edu>
Date: 2011/11/24
Subject: Re: Fyrirspurn um meðferð auglýsinga
To: Páll Magnússon <pall.magnusson@ruv.is>

Sæll aftur Páll

Takk fyrir svörin.  Ég hef eftirfarandi athugasemdir:

1.  Ég tel, enn sem fyrr, að LÍÚ hafi villt á sér heimildir með því að auglýsa undir nafninu „íslenskir útvegsmenn“.  Annars vegar er LÍÚ alls ekki fulltrúi allra íslenskra útvegsmanna og ætti því að vera óheimilt að auglýsa með slíkri undirskrift, alveg eins og það væri óeðlilegt að Samtök Verslunar og Þjónustu fengju  að auglýsa í nafni „íslenskra verslunarmanna“.  Það segir sína sögu að LÍÚ vísaði í síðari auglýsingum á vefsíðu sem sambandið á, en þar kom ekkert fram um hver stæði á bak við síðuna þegar auglýsingarnar voru lesnar.

2.  Ég tel ekkert rangt við regluna um að auglýsingar séu skýrt merktar auglýsandanum, en því var greinilega ekki framfylgt varðandi LÍÚ.  Í síðasta pósti mínum þar sem ég bað um að auglýsing yrði lesin tók ég sérstaklega fram að ef það væri álitin frágangssök að undirskriftin væri „borgari“, þá mætti setja „Einar Steingrímsson“ í staðinn.  Óljós undirskrift var því ekki ástæða höfnunar hennar.

3.  Þú vísar í 3. og 4. tölulið 4. greinar auglýsingareglna RÚV varðandi höfnun á síðustu auglýsingunni sem ég vildi fá birta.  Það tel ég ekki standast þar sem fullyrt var í henni annars vegar að LÍÚ hefði siglt undir fölsku flaggi í auglýsingum sínum, sem ég tel augljóst, sbr. ofangreint.  Ennfremur að innihald auglýsinga LÍÚ hafi einmitt brotið gegn þessum ákvæðum sem þú nefnir, þar sem þær hafi ekki innihaldið „það eitt sem er satt og rétt“, auk þess sem  fólu í sér „ádeilu eða hlutdræga umsögn um […] stefnur í almennum málum.“  Í auglýsingunni sem ég vildi fá birta var sem sagt engu öðru haldið fram en því sem augljóslega er rétt, og sem RÚV virðist nú hafa viðurkennt, án þess að vilja lýsa því yfir opinberlega, hvað þá að biðjast afsökunar.

4.  Það er ástæða fyrir því að ég kalla upphafleg viðbrögð RÚV í þessu máli pólitíska ritskoðun.  Ég á auðvitað ekki við að RÚV sé með skipulagða og meðvitaða pólitíska ritskoðun.  Hins vegar tel ég þetta vera ljóst dæmi um þá ritskoðun sem verður nánast „sjálfvirk“ þar sem viðtekin viðhorf þeirra sem voldugastir eru verða sjálfsögð og vekja engin viðbrögð, en andstæð viðhorf óbreyttra borgara vekja hins vegar allt önnur viðbrögð.  Þetta er að mínu áliti lúmsk og mjög alvarleg pólitísk ritskoðun.

5.  Í ljósi þess sem á undan er gengið eru það vonbrigði að heyra að RÚV ætli ekki að biðjast afsökunar á að hafa birt fjölda auglýsinga frá LÍÚ sem augljóslega brutu gegn auglýsingareglum RÚV.  Það bendir ekki til að forysta RÚV geri sér grein fyrir því sem ég tel vera alvarlegt eðli þessa máls.  Það er miður, því forystan virðist þar með ekki líta svo á að hlutverk RÚV sé að þjóna almenningi fremur en voldugum hagsmunasamtökum.

Bestu kveðjur,

Einar

PS.  Ég mun birta þessi póstskipti okkar á blogginu mínu.  Hafirðu fleiri athugasemdir sem þú vilt koma á framfæri þar er það sjálfsagt mál.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (6)

  • Rósa Halldórsdóttir

    … yfirmenn á auglýsingadeild tóku umræddar auglýsingar til nánari skoðunar og komust að þeirri niðurstöðu að þær kynnu líka ?????? (er það ekki kýrskýrt?) að varða við 3. og 4. tölulið 3. greinar í auglýsingareglum RÚV. Eftir samræður við auglýsandann var birtingum þeirra hætt (af hverju eftir samræður við útvegsmenn? – þýðir þetta að yfirmenn auglýsingadeildar geta ekki tekið ákvörðun nema í samráði/samþykki útvegsmanna?).

  • Hér er RUV Páll með allt niður um sig. Neitar að viðurkenna það sem er augljóst. Þetta er mjög slæmt.

  • Rule #1 don’t mess with Einar. Það verður spennandi að sjá hver verður næsti leikur LÍÚ í þessari stöðu. Varla láta þeir Einar stoppa áróðursmaskínuna sína.
    Ég styð Einar heilshugar í þessu máli.

  • Ásdís Jónsdóttir

    Það er slæmt að sjá farið svona með útvarp allra landsmanna og mikil skömm að biðja ekki afsökunar á augljósum mistökum stofnunarinnar. Að vísu er gott að þessi áróðursmaskína hefur verið stöðvuð í bili og vonandi að yfirmenn við ríkisútvarpið hafi áttað sig að því að þetta ER útvarpið okkar allra og VIÐ eigum það en ekki sérhagsmunasamtök.

  • Segi eins og Rósa það sló mig við lesturinn að þeir skyldu ráðfæra sig við L.Í.Ú. Ekki þurfi Páll að ráðfæra sig við Einar um hans auglýsingu. Þar var bara einfallt nei. Annars finnst mér bréf útvarpsstjóra hrokafullt. Vona að það komi eitthvað vitrænt út úr þessu. Því margir landsmenn eru orðnir þreyttir á hlutlægi útvarpsins. Það er ekki verið að hugsa um að koma réttum upplýsingum til almennings, heldur oftar en ekki að koma í veg fyrir birtingar sem koma ákveðnu peningaafli eða yfirvaldi illa.

  • Fullkominn diskur

    Hlutdrægni útvarpsins.

    Þ.e. óhlutlægi þess.

    En ekki hlutlægi þess.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og fimm? Svar:

Höfundur

Einar Steingrímsson
Nánar um höfund ...
RSS straumur: RSS straumur