Föstudagur 14.02.2014 - 10:15 - 6 ummæli

Stefán Eiríksson rannsakar yfirmann sinn

Nýlega fékk lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Eiríksson, til rannsóknar frá ríkissaksóknara lekamál innanríkisráðuneytisins.  Í því máli hafa starfsmenn ráðuneytisins, þ.á.m. ráðherra, verið kærðir vegna gruns um hegningarlagabrot.
Ég spurði Stefán í tölvupósti hvort rannsókn málsins væri hafin, og hvort hann teldi sig ekki vanhæfan til að rannsaka málið.  Stefán neitar að svara þessu og segir að embættið muni ekki tjá sig um málið, þótt spurningarnar hafi alls ekki snúist um málið sjálft.
Stefán er lögfræðimenntaður, og hlýtur auðvitað að gera sér grein fyrir því hversu vafasamt það er að hann sé hæfur til að rannsaka málið, samkvæmt 3. grein stjórnsýslulaga, en þar stendur meðal annars:
Starfsmaður … er vanhæfur til meðferðar máls … ef hann á sjálfur sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta …  Sama á við ef næstu yfirmenn hans hjá hlutaðeigandi stjórnvaldi eiga sjálfir sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta. … ef að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu.
 Af þessum ákvæðum að dæma er þetta reyndar varla neitt vafamál.  Embætti Stefáns heyrir nefnilega undir innanríkisráðherra, sem hefur gríðarleg áhrif á fjárveitingar til embættisins og störf þess að öðru leyti, og sama gildir um næsta yfirmann Stefáns, ríkislögreglustjóra, sem heyrir beint undir ráðherra.
Það sem verra er, það er innanríkisráðherra sem skipar í embætti Stefáns, og getur því rekið þann sem situr í því.  Þar að auki vill svo til að skipunartími Stefáns rennur út um mitt ár 2016, á þessu kjörtímabili.  Það þýðir að ef Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem nú sætir lögreglurannsókn sem Stefán ber ábyrgð á, situr áfram í embætti, þá á Stefán áframhaldandi skipun sína undir Hönnu Birnu sjálfri.
Lögreglustjórinn sem á að rannsaka kærur á hendur ráðherra og öðrum starfsmönnum ráðuneytisins á sem sagt framtíð sína og starfsskilyrði undir sama ráðherra.
Það er til nafn yfir ríki þar sem svona aðfarir eru taldar eðlilegar.  Þau eru kölluð bananalýðveldi.  En vonandi gengur Stefán ekki niður í það víðfeðma fúafen sem spillingin í íslenskri stjórnsýslu er …

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (6)

  • Haukur Kristinsson

    Sjalla-klíkan er afar voldug, nær ósigrandi, eins og staðan er í dag.
    Hafa sína menn í öllum skúmaskotum stjórnsýslunnar, enda notað styrk sinn til að kaupa menn til fylgis og hlýðni allt frá stofnun lýðveldisins.
    Eiga einnig útsendara í „vinstri“ flokkunum, kom vel í ljós á síðasta kjörtímabili.
    En takið eftir, þessi hráksmíði sem kallast „lýðveldi“, er í boði þjóðarinnar. Hér eru engin kosningasvik, þótt komið hafi fyrir að kosningar hafi verið dæmdar ólöglegar af tittum Íhaldsins í Hæstarétti.

    Handónýtt þjóðfélag er sem sagt í boði kjósenda. Glæsilegt!

    • „Eiga einnig útsendara í „vinstri“ flokkunum, kom vel í ljós á síðasta kjörtímabili.“ Øgmundur Jònasson, engin vafi.

  • Þorsteinn Úlfar Björnsson

    „vonandi gengur Stefán ekki niður í það víðfeðma fúafen sem spillingin í íslenskri stjórnsýslu er …“

    Býstu við öðru? Í alvöru?

  • Lalli leikmaður

    Aðalatriðið er að valdhöfum dagsins takist ekki að gera málið pólitískt (þ.e. þetta sem þeir væna nú aðra um að reyna að gera) því málið snýst ekki um neitt annað en prinsip.

    Yfirleitt skilja valdhafar á Íslandi ekki prinsip og löngu orðið tímabært að hjálpa þeim til þess.

  • Lalli leikmaður

    Þetta tiltekna prinsip?

    Ráðuneyti vinnur ekki vinnuna sína með því að dreifa rógi.

    Kannski eru flóttamann voða mikill vandi á Íslandi.

    En hann verður ekki leystur með rógburði.

  • Íslenskur sveitalubbaháttur eins og venjulega. Dettur einhverjum í hug að þetta verði hlutlaus rannsókn? Svei þessu spillta liði.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og sex? Svar:

Höfundur

Einar Steingrímsson
Nánar um höfund ...
RSS straumur: RSS straumur