Þegar þingsætum er úthlutað til lista í hverju kjördæmi fyrir sig, þá er notuð regla D’Hondts. Hún er tiltölulega einföld: Fyrsti maður á tilteknum lista fær stig sem nema öllum atkvæðum listans, annar maður fær stig sem nema helmingi atkvæðanna, sá þriðji fær 1/3, og svo koll af kolli. Þannig er sérhverjum frambjóðanda í kjördæminu […]
Því hefur verið haldið fram síðustu daga að öruggasta leiðin til að koma í veg fyrir að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur fái meirihluta á þingi sé að kjósa Samfylkinguna eða VG, frekar en Dögun eða Lýðræðisvaktina (LV). Þetta er rangt. Samanlagt fylgi Dögunar og LV mælist nú 6,5%. (Vera má að þessar kannanir sýni ranga mynd, […]
Útlit er fyrir að það verði óvenjulegur fjöldi framboða í þingkosningum í vor, og því hafa sumir velt fyrir sér hvort ekki væri skynsamlegt að sameina sum þeirra, til að auðvelda kjósendum valið. Þetta á auðvitað helst við framboð sem hafa keimlíka stefnu í mikilvægustu málunum. Það er ljóst að nokkur framboðanna hafa í raun […]
Vegna mikils verðfalls á silfri síðustu tvö þúsund árin hefur verið ákveðið að leysa Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, út með þrjátíu gullpeningum þegar hún lýkur störfum í vor. Í öðru og þriðja sæti eru Árni Páll Árnason og Katrín Jakobsdóttir. Þau verða að láta sér nægja silfur í þetta sinn, en á næsta þingi […]
Eitt af því sem of lítið virðist spurt um í fjölmiðlum í því fjaðrafoki sem stendur yfir á Alþingi vegna stjórnarskrárfrumvarpsins er breytingatillaga fjögurra stjórnarliða, þeirra Oddnýjar G. Harðardóttur, Álfheiðar Ingadóttur, Árna Þórs Sigurðssonar og Skúla Helgasonar. Þetta er breytingatillaga við þá tillögu formanna Samfylkingar, VG og Bjartrar Framtíðar að samþykkja á þessu þingi bara […]
Þegar Steingrímur J. Sigfússon ákvað að flytja sig úr stóli fjármálaráðherra yfir í atvinnuvegaráðuneytið útskýrðu það sumir með því að hann væri orðinn lúinn á álaginu sem fylgdi því að vera fjármálaráðherra á erfiðum tímum. Getur verið að skýringin sé önnur? Að Steingrímur hafi farið í atvinnuvegaráðuneytið til að passa upp á að staðið yrði […]
Í gærkvöldi birti Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, eftirfarandi á Facebook-síðu sinni: Stjórnarskrármálið sýnir eitt afar skýrt: Samfylkingin er alvöru jafnaðarmannaflokkur. Við stöndum fyrir skynsamlegar og færar leiðir í þessu máli rétt eins og öllum öðrum. Og eins á öllum tímum er við að eiga sameinað afturhald: Þá sem engu vilja breyta og últramennina sem […]
Samfylkingin var upphaflega stofnuð til að sameina fólk sem taldi sig til vinstri í samfélagsmálum, þ.e.a.s. félagshyggjufólk. Það tókst að vísu ekki fullkomlega þar sem sumt „vinstrafólk“ vildi frekar verða beinir arftakar Alþýðubandalagsins en að taka þátt í sameiningu allra á vinstri vængnum. Reyndar virðast Vinstri Græn hvorki vera sérstaklega vinstrisinnuð né græn miðað við […]
Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, er á lista yfir þá þingmenn sem segjast vilja samþykkja stjórnarskrárfrumvarpið í heild sinni. (Ég skrifaði honum í gær og spurði hvort einhver misskilningur byggi að baki skráningunni á þessari síðu, en hef ekki fengið svar við því.) Samt er Magnús í algeru uppnámi vegna breytingatillögu Margrétar Tryggvadóttur, sem leiðir […]
Þegar ég var táningur átti vinur minn einn hljómplötu sem við hlustuðum oft á. Ég man litið eftir henni nema hvað í einum textanum var fjallað um seinni heimsstyrjöldina. Þar voru spiluð hin frægu orð Chamberlains forsætisráðherra Bretlands, þegar hann kom heim af fundi með kanslara Þýskalands í München í september 1938: Við lítum á […]