Margir fjölmiðlar, þeirra á meðal ríkissjónvarpið og ruv.is, hafa í dag birt fréttir af njósnum manns nokkurs um aðra manneskju sem áður var honum nátengd. Ef til vill spinnst af þessu einhver umræða um hvenær fjölmiðlar eigi að nafngreina fólk í svona málum. Um það ætti að gilda sú einfalda regla að það sé aðeins […]
Tölurnar í eftirfarandi sögum eru ekki nákvæmar, en nógu nærri lagi til að kjarni málsins sé réttur. Manneskja A keypti, fyrir hrun, íbúð sem kostaði 21 milljón. Hún átti 7 milljónir sjálf sem hún setti í þetta, og tók 14 að láni, með verðtryggingu. Lánið var sem sé fyrir 67% af andvirði íbúðarinnar, sem telst […]
Landsvirkjun er fyrirtæki sem byggir og rekur virkjanir, og á að vinna í þágu almannahagsmuna. Samkvæmt þessari frétt kom það núverandi forstjóra Landsvirkjunar á óvart að „margir virkjunarkostir hafi hafnað á verndarlista“ í nýlegri rammaáætlun. Fyrr í sumar lét sami forstjóri gera skýrslu um þau gríðarlegu auðæfi sem Landsvirkjun gæti fært þjóðinni ef hún fengi […]
Í dag birtist athyglisverð grein í Fréttablaðinu, eftir Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur. Greinin er athyglisverð af því að hún segir einfaldan sannleika á einfaldan hátt. Það er alltaf sláandi þegar maður hefur sjálfur hugsað svipaðar hugsanir, án þess að geta fært þær í svona einfaldan búning. Afhjúpanir af þessu tagi eru náskyldar sögunni um Nýju fötin […]
Þann 26. júní skrifaði ég bloggfærslu um kostun hagsmunaaðila á akademískum stöðum við háskóla, og um þjónkun háskóla við hagsmunaaðila. Þar nefndi ég stöðu Helga Áss Grétarssonar við Lagastofnun Háskóla Íslands, sem kostuð er af LÍÚ. Við Helgi höfum síðan rætt þessi mál og niðurstaðan varð sú að ég birti hér athugasemdir hans við pistil […]
Þótt tillaga Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sé ekki mjög róttæk er nokkuð öruggt að hún muni mæta mikilli andstöðu þeirra afla sem ekki mega til þess hugsa að hróflað verði við því stjórnarfari sem hér hefur ríkt í áratugi. Þar á meðal eru ýmis voldug hagsmunasamtök (t.d. LÍÚ) og allir stjórnmálaflokkarnir fjórir sem hafa drottnað […]
Hér að neðan er texti greinar eftir mig sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Það er sjálfsagt að fara varlega í að hrófla við réttarkerfinu; það er mikilvægt að leikreglur þess séu skýrar, og að öllu jöfnu eiga niðurstöður Hæstaréttar að vera endanlegar. Á þessu eru þó undantekningar, því allir geta gert mistök. Í Geirfinns- […]
Hér að neðan er útdráttur úr frétt í DV. Fyrir þrjátíu árum varð til hugtakið „löglegt en siðlaust“. Það var Vilmundur Gylfason sem sagði þessi fleygu orð um þá spillingu sem hafði þá þegar gegnsýrt íslenska stjórnsýslu í áratugi. Ætla hefði mátt að þessi afhjúpun á eðli íslenska valdakerfisins yrði til að gera spillingaröflunum erfiðara […]
Í Stjórnlagaráði er nú tekist á um hvaða ákvæði eigi að vera í stjórnarskrá um kosningafyrirkomulag. Líklega er óhætt að segja að sú krafa eigi mikinn hljómgrunn meðal almennings að opnað verði fyrir persónukjör, enda margir búnir að fá nóg af flokksræðinu sem hefur tröllriðið valdakerfinu í áratugi, og á eflaust sinn þátt í að […]
Á vef Stjórnlagaráðs er sagt frá nýsamþykktum tillögum þess um löggjafarmál og fleira. Þar segir meðal annars: Í tillögunum kemur fram að við stjórnarmyndun muni Alþingi nú kjósa forsætisráðherra, en forseti Íslands verði eins konar verkstjóri í viðræðum milli þingflokka, líkt og verið hefur. Í tillögu ráðsins stendur nákvæmlega þetta: Eftir að hafa ráðfært sig […]