Alvöru undanskot á Íslandi eru hvorki gerð með fimmþúsund króna seðli né tíuþúsund króna seðli – Þetta á fjármálaráðherra að vita manna best.
Spurningin sem vaknar við tillögu Benedikts fjármálaráðherra um að banna seðla er; Hvers vegna í ósköpum veigrar hann sér við að taka á stórum undanskotum?
Stórfelld undanskot á Íslandi verða þegar útflutningsfyrirtækin sem hafa tímabundinn einokunarrétt til að nýta sjávarauðlindina, „selja“ sjávarafurðir til eigin skúffufyrirtækja á lágu verði sem síðan selja vöruna á miklu hærra verði til raunverulegra kaupenda. Hagnaðurinn af viðskiptunum verður eftir á reikningi skúffufyrirtækja í skattskjólum á Kýpur, Guernsey eða einhverju álíka og verður því ekki skattlagður á Íslandi.
Sama hefur átt við um að þá iðju sem íslenskir innflytjendur hafa lengi stundað þ.e. flutt inn vörur til landsins, í gegnum milliliði erlendis og skilið eftir fjármuni á erlendum bankareikningum. Eflaust verður þessi iðja snúnari með aukinni samkeppni sem fylgir Costco.
Stór undanskot stóriðjufyrirtækjanna á Íslandi fara fram með þunnri eiginfjármögnun og háum vaxtagreiðslum af málamyndalánum sem veitt eru af sjálfum eigendum stóriðjufyrirtækjanna. Komið er í veg fyrir að hagnaður myndist í fyrirtækjunum sem hægt væri að skattleggja, með því að búa til kostnað stóriðjufyrirtækjanna við móðurfélög m.a. með háum vaxtagreiðslum.
Í stað þess að koma með tillögur sem taka á stórum undanskotum, þá leggur Viðreisn fram tillögu um seðlabann til þess að tína upp nokkrar baunir í ríkissjóð! Á sama tíma á flokkurinn í leynilegum viðræðum við erlenda aðila um sölu á Keflavíkurflugvelli. Áformin um að einkavæða eina raunverulega hliðið inn og út úr landinu gengur í sjálfu sér algerlega í berhögg við hagsmuni almennings.
Það er eftir öðru hjá Viðreisn, að sá erlendi aðili sem á í viðræðum við stjórnvöld, um kaupin á Keflavíkurflugvelli, er fjárfestingafélagið Macquarie, sem er þekkt af stórfelldum undanskotum á hagnaði Kastrup-flugvallar í Kaupmannahöfn. Þau undanskot fóru fram með þunnri eiginfjárfjármögnun og háum vaxtagreiðslum. Reynsla Dana af sölunni á Kastrup til fyrrgreindra aðila var einfaldlega hræðileg. Í kjölfarið á sölunni rann allur ágóði fyrirtækisins af starfseminni á Kastrup, sem vaxtagreiðslur beina leið í skattaskjól í gegnum skúffufyrirtæki í Lúxemborg.
Það er engu líkara en að Viðreisn vilji taka með töngum á þeim sem stela fimmþúsundkalli en bugta sig og beygja fyrir þeim sem stela meiru en 500 milljónum!