Byrjað var að ræða frumvörp um breytingar á fiskveiðistjórnunarlögum á mánudaginn og þegar þetta er ritað á miðvikudagskvöldi stendur umræðan enn og enn er verið að ræða minna frumvarp sjávarútvegsráðherra eða Jónsbók hina skemmri eins og sumir kalla það. Við munum væntanlega geta mælt fyrir okkar frumvarpi (sjá hér) á föstudaginn en það er allt annars […]
Í umræðum á Alþingi í dag undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir spurði Margrét Tryggvadóttir utanríkisráðherrann hvort honum fyndist það rétt að biðja Falun Gong afsökunar á framferði íslenskra stjórnvalda árið 2002 þegar ríkisstjórnin undir forystu Davíðs Oddsonar og Halldórs Ásgrimssonar og með fulltingi Björns Bjarnasonar svipti hóp friðsömustu trúariðkenda sem um getur, málfrelsi, tjáningarfrelsi og ferðafrelsi auk […]
Hreyfingin lagði fram sem þingmál í gær frumvarp til laga um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu (Þskj. 1510 – 839. mál). Þetta gerum við vegna tvenns, ítrekaðra yfirlýsinga forsætisráðherra um að breytingar á kerfinu eigi að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu og vegna þess að stefna Hreyfingarinnar er að auðlindir eigi að vera í þjóðaraeigu. Það er náttúrulega algerlega […]
Mælti í dag fyrir frumvarpi Hreyfingarinnar til laga um þak á laun forystumanna verkalýðshreyfingarinnar þar sem kveðið er á um að þau megi ekki vera hærri en þreföld lágmarkskjör í því verkalýðsfélagi eða hagsmunasamtökum sem formaðurinn veitir forystu. Við teljum mikilvægt að sett sé hámark á laun forsvarsmenn verkalýðsfélaga og hagsmunasamtaka launafólks enda er oft […]
Á dagskrá Alþingis í dag er frumvarp um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka, lagt fram af þingmönnum Hreyfingarinnar. Breytingarnar sem lagðar eru til eru í samræmi við markmið gildandi laga um að draga úr hættu á hagsmunaárekstrum og tryggja gagnsæi í fjármálum, sem og að auka traust á stjórnmálum og efla lýðræði. Helstu breytingar […]
Ég er einn af þeim sem fagna því að ákveðið var að klára tónlistarhúsið og studdi það á Alþingi. Ég tel að það muni verða mikil lyftistöng fyrir tónlistarlíf í landinu og efla umgjörð þessarar mikilvægu menningargreinar sem og að verða lyftistöng fyrir ráðstefnuhald sem við vonandi getum eitthvað lært af vitsmunalega. Húsið er mikilúðlegt […]
Umræðan um vantrausttilögu og kosningar fór fram á miðvikudaginn. Línur skýrðust svo sannarlega þegar Ásmundur Einar Daðason yfirgaf ríkistjórnarmeirihlutann og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ósk Vilhjálmsdóttir (sem leysti Valgerði Bjarnadóttir af) staðfestu stuðning sinn við Magma málið og sölu náttúruauðlinda úr landi. Merkileg umræða í mjög taugatrekktu þingi. Setti hér inn ræðurnar okkar í Hreyfingunni: […]
Í dag er tilefni til að gleðjast og það er mikið fagnaðarefni að almenningur fái að ganga til kosninga um svo mikilvægt mál sem Icesave III samingarnir eru. Vantraust almennings á stjórnvöldum, stjórnsýslu og stjórnarfari almennt er mikið og við þær aðstæður er mikilvægt að stjórnvöld sýni almenningi virðingu og traust. Hver svo sem úrslitin […]
Inngangur Það er mikið fagnaðarefni að almenningur fái að ganga til atkvæðagreiðslu og kjósa um svo mikilvægt mál sem Icesave III samingarnir eru. Vantraust almennings á stjórnvöldum, stjórnsýslu og stjórnarfari almennt er mikið og við þær aðstæður er mikilvægt að stjórnvöld sýni almenningi virðingu og traust. Beint lýðræði með þjóðaratkvæðagreiðslum eru það aðhald sem stjórnvöld […]
Dúddi lánaði Bjögga bækur. Bjöggi fór í felur og bækurnar hverfa enda er hann mikill áhugamaður um bækur og hefur verið virkur safnari í mörg ár. Vinahópur Dúdda borgar honum bækurnar og byrjar að leita þeirra á heimili Bjögga. Þótt hægt gangi þá segist vinahópurinn sannfærður um að bækurnar finnist með tímanum. Sendir engu að […]
Nýlegar athugasemdir