Mánudagur 14.02.2011 - 12:04 - 11 ummæli

Áskorun til Björns Inga Hrafnssonar

Björn Ingi Hrafnsson er nýlega orðinn einn af eigendum Eyjunnar.  Hann er líka stjórnarformaður Eyjunnar og einnig Vefpressunnar, sem er eigandi Eyjunnar, Pressunnar og fleiri vefmiðla.  Auk þessa titlar Björn sig „útgefanda“ Eyjunnar.  Það er ekki alveg nýtt á Íslandi, því Óskar Magnússon tók sér þennan titil á Morgunblaðinu skömmu áður en Davíð Oddsson var gerður að ritstjóra, en þetta er líka þekkt á nokkrum frægum dagblöðum erlendis, eins og New York Times og Washington Post.  Þessi titill sem Björn hefur sæmt sig bendir til að hann ætli að hafa afskipti af ritstjórnarstefnu Eyjunnar eða jafnvel ákvarða hana einn.

Því er ástæða til að þýfga Björn um stefnu hans á þessum vettvangi, svo lesendum Eyjunnar megi ljóst vera við hverju er að búast.  Það er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að hér varð nýlega efnahagshrun, sem hefur eðlilega haft mikil áhrif á fjölmiðlun í landinu, og mun hafa lengi enn, enda verða eftirköst hrunsins væntanlega eitt af helstu umfjöllunarefnum fjölmiðla næstu árin.

Björn hefur ekki verið stikkfrí varðandi hrunið og álitamál sem upp hafa komið í tengslum við það.  Hann lék talsvert hlutverk í stjórnmálum Reykjavíkurborgar skömmu fyrir hrun, þar sem afdrifaríkar ákvarðanir voru teknar um Orkuveitu Reykjavíkur, og einnig hafa verið fréttir í fjölmiðlum um óeðlileg kúlulán sem Björn á að hafa þegið,

Það er óþægilegt, svo ekki sé kveðið fastar að orði, þegar fólk með fortíð í forystu stjórnmálanna, og tengsl við umdeilda fjármálafyrirgreiðslu í darraðadansinum fyrir hrun, leggur undir sig fjölmiðla.

Því er hér með skorað á Björn Inga að hann lýsi með skýrum hætti þeirri stefnu sem fylgt verður í ritstjórn Eyjunnar, og ennfremur að hann geri hreint fyrir sínum dyrum varðandi eigin fjármálagjörninga síðustu árin, og hvernig mál tengd þeim standa í dag.

PS.  Svo þetta kæmist örugglega til skila hef ég sent þennan pistil Birni Inga, og Karli Th. Birgissyni, ritstjóra Eyjunnar.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (11)

  • Takk fyrir að halda þessu á lofti, Einar.
    .
    Það er knýjandi fyrir trúverðugleika Eyjunnar, að Björn Ingi og Karl Th. birti nokkurs konar Manifesto fyrir Eyjuna.

  • Haraldur Ingi Haraldsson

    Vel og snöfurmannlega mælt og af sanngirni

  • Það verður spennandi að fá svör. Það er orðið hálf pínlegt að laumast inn á eyjuna til að lesa bestu bloggarana. Pínlegt eins og þegar mar dettur „óvart“ inn á pressuna og blygðast sín alltaf jafnmikið.

  • Herta Kristjánsdóttir

    Margrét…góður..

  • Skítlegt eðli

    Ummælin hér okkur segja
    að nú tæmist svið
    og þetta verði eyðieyja
    sem enginn lítur við

  • Björn Guðbrandur Jónsson

    Vel mælt Einar. Það verður að svæla þessa drengi út úr hellinum.

  • Jenný Anna Baldursdóttir

    Takk.

  • @Ari, kl.13:16

    Veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta.

    Björn Ingi hefur reist sér ýmsa óbrotgjarna minnisvarða í gegnum tíðina, sem hann er vonandi hugsi yfir.
    Kannski er hann að stilla sína kompása upp á nýtt með kaupum á Eyjunni. Ég ætla að leyfa honum að njóta vafans um hríð.
    .
    Það verður fróðlegt að lesa nýja stefnuyfirlýsingy Eyjunnar frá þeim Birni og Karli, sem HLÝTUR að birtast. Annars missa þeir marga trúverðuga bloggara.
    .
    Fer þá ekki bara fyrir Eyjunni eins og Atlantis?

  • Jón Jónsson

    Vel mælt Einar.
    Segi eins og ýmsir aðrir að það er ömurlegt að koma við á þessum slóðum eftir að eignarhaldi breyttist.

  • Þórarinn

    Þörf áminning Ari – Bingi vildi senda ömma úr landi – fyrir að benda á þá staðreynd að viðskiptabankarnir myndu gera landið gjaldþrota ef héldi áfram sem horfði. Ömmi vildi þá úr landi en Bingi var á kúlulánalaunaskrá bankanna og hélt uppi vörnum. Það tókst hjá Binga. Takk Bingi fyrir framsýnina.

    Á Eyjunni er ei líft lengur og því leita ég einsog margir að nýju vefsvæði þar sem hægt er að treysta fréttaflutningi.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og tveimur? Svar:

Höfundur

Einar Steingrímsson
Nánar um höfund ...
RSS straumur: RSS straumur