Miðvikudagur 20.08.2014 - 10:16 - 3 ummæli

Gísli Freyr gæti sannað sakleysi sitt

Gísli Freyr Valdórsson, fyrrum aðstoðarmaður Hönnu Birnu innanríkisráðherra, hefur verið ákærður fyrir hegningarlagabrot í starfi sínu sem aðstoðarmaður ráðherrans.  Hann er ákærður fyrir að hafa með saknæmum hætti lekið gögnum úr ráðuneytinu, þar sem markmiðið var augljóslega að sverta manneskju sem ekki gat borið hönd fyrir höfuð sér.
Gísli heldur fram sakleysi sínu, þótt hann hafi (líklega einn þeirra sem höfðu aðgang að umræddu skjali) átt mörg símtöl við blaðamenn á Vísi og Morgunblaðinu skömmu áður en þessir miðlar birtu fréttir um málið, byggðar á minnisblaðinu sem lekið var.
Miðað við málatilbúnað lögreglunnar sem rannsakaði málið, eins og hann kemur fram í nýlegum dómum Hæstaréttar, eru það þessi samtöl Gísla við fréttafólkið sem valda því að hann er grunaður, og nú ákærður.  Tímasetningar þessara símtala og fréttanna sem fylgdu í kjölfarið má sjá í þessari frétt DV.
Auðvitað þarf Gísli ekki að sanna sakleysi sitt fyrir dómstólum; það er  ákæruvaldið sem þarf að sanna að hann sé sekur. En ef það er rétt hjá Gísla að hann hafi ekki lekið skjalinu til fréttafólks þessara miðla væri honum í lófa lagið að efla trú almennings á sakleysi sitt:  Hann myndi einfaldlega biðja viðkomandi blaðamenn að stíga fram og lýsa því yfir að þessi samtöl hafi ekki tengst lekaskjalinu.  Ekkert þyrfti að koma fram um efni þessara samtala nema það.
Hefur Gísla ekki dottið í hug að bregðast þannig við grun almennings um að hann sé sekur um það svívirðilega brot sem hann er ákærður fyrir?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (3)

  • Bergur Ísleifsson

    Ég get ekki ímyndað mér að þótt einhverjir blaðamenn kæmu fram og segðu eitthvað án þess að sýna nein gögn máli sínu til stuðnings þá muni það „sanna“ eitthvað. En þessi spilaborg á samt eftir að hrynja, ég er alveg viss um það.

  • Hvernig var með Hæstaréttardóminn varðandi tölvupóstana hennar Jónínu sem birtir voru samhengislausar skemmandi setningar úr í Fréttablaðinu?
    Þó svo að Jón Ásgeir hafi borgað vel fyrir stolið afrit af pósthólfi hennar þá eru það nú mun persónulegri upplýsingar en staðreyndir um þennan margra-landa-hælisleitanda.
    Hver breytti minnisblaðinu með dyggri aðstoð Marðar Árnasonar eða var það þinghelgi hans sem olli hinum langa tíma sem tók að útbúa ákæruna?

  • Haukur Kristinsson

    Það var sem sagt hinn mikli trúmaður og bíblíulesari Gísli Freyr, sem fann hjá sér innri þörf til að níðast á blásnauðum og heimilislausum hælisleitanda. Hann hefur þar með tryggt sér góðar móttökur þegar að því kemur að hann mæti skapara sínum, fyrir að „hnekkja þeim veika til fulls og alls, svo bugaði reyrinn brotni.“

    „What a fucking son of a bitch“.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og sex? Svar:

Höfundur

Einar Steingrímsson
Nánar um höfund ...
RSS straumur: RSS straumur