Það er greinilega tekist á um skuldavanda heimilanna á bak við tjöldin. Í kjölfar mótmælanna fór Ögmundur af stað til að finna raunverulega lausn á skuldavandanum. Eitthvað sækist honum það seint og um leið hefst grátkór lífeyrissjóða og annarra lánadrottna. Þögn verkalýðsforustunnar vegna gjaldþrota heimila landsmanna er æpandi. Við vitum að Steingrímur er á móti […]
Það er sennilega eitthvað bogið við okkur Íslendinga. Sjálfsagt er það ástæðan fyrir því hvað við erum spes, eða þannig sko. Siðan hrunið varð hefur verið örtröð af mönnum, konum og samtökum sem hafa rætt almennar afskriftir á skuldum heimila. Það eru liðin tvö ár. Í dag er ákveðið að reikna út dæmið! Er þetta […]
Það er orðið greipt í þjóðarsálina að við verðum að spara. Oft verið talið sem dyggð og merki um ráðdeildarsemi en getur verið tvíeggja sverð þegar heildræn áhrif eru könnuð. Í kreppu er ekki talið skynsamlegt að spara. Það er aðgerð sem er kreppudýpkandi og skýrsla sérfræðinga um slíkt hefur verið birt þar sem niðurstaðan […]
Þór Saari sagði á þingi í dag, eftir fund með ráðherrunum, að honum findist að Ögmundur væri viljugur til að leysa skuldavanda heimilanna en Jóhanna og Steingrímur væru enn þá hálfvolg. Þetta kemur ekki á óvart í sjálfu sér. Steingrímur er í Whasington á haustfundi AGS og mun ræða við helstu lánadrottna heimsins. Spurningin er […]
Það er ekki auðvelt að átta sig á hvert við erum að fara. Nokkuð ljóst er að skuldavandi heimilanna er kominn í sviðsljósið og er það vel. Margir aðilar hafa margrætt vandamálið og lausnir á því. Hagsmunasamtök heimilanna hafa unnið þar ótrúlega gott starf. Þrátt fyrir það hélt ríkisstjórnin að hún hefði leyst málin en […]
Ástandið er eitthvað svo absúrd. Við erum strax farin að deila um hvers konar fólk var á Austurvelli í gær. Reynt er að gjaldfella mótmælendur eins og ríkjandi stjórnvöld reyndu líka veturinn 2008-9. „Þið eruð ekki þjóðin“ stendur þó enn óhaggað á toppnum. Enn aðrir telja sjálfum sér trú um að núverandi stjórnvöld hafi gert […]
Í umræðunni um bankahrunið og afleiðingar þess eru skiptar skoðanir. Hluti þjóðarinnar telur að ástæðan séu jeppar og önnur eyðsla. Þess vegna ber okkur að axla byrðarnar án þess að kvarta. Einnig að þetta sé þrautaganga með fórnum sem við eigum meira eða minna skilið. Sú hugmyndafræði að almenningur sé skyldugur til að taka á […]
Ástandið er slæmt, ástandið er ekki vegna aukins kostnaðar af vinnuafli, launum eða félagslegum umbótum. Orsökin er að bankar eru stikkfrí-ríki í ríkinu. Þeir orsökuðu hrunið og ætlast til þess að almenningur endurfjármagni þá og greiði upp lánin sín líka. Formúlan virðist vera á þá leið að skera niður hjá hinu opinbera og skattleggja almenning. […]
Steingrímur sagði í dag; „Fólk verði hins vegar að sýna þolinmæði og Íslendingar verði að reyna að komast gegnum erfiðleikana saman sem þjóð.“ Halldór Ásgrímsson fékk afskrifaðar skuldir hjá Landsbankanum enda var hann ekki á Austurvelli í dag. Þeir sem voru mættir í dag á Austurvöll voru flestir að mótmæla því að fjölskyldum er hent […]
Þá er ég orðinn eyjubloggari. Ég vil þakka forráðamönnum Eyjunnar fyrir að gefa mér kost á því. Vonandi verð ég miðlinum ekki til mikillar skammar. Landsdómur hefur verið mál málanna síðustu daga. Sennilega mun það mál hafa minnsta þýðingu fyrir hag almennings í nánustu framtíð. Hugsanlega mun Landsdómsmálið hafa þýðingu fyrir okkur þegar fram í […]