Stjórnkerfið er í gríðarlegri kreppu. Fjármálastofnanir virða ekki dóma Hæstaréttar, álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna er sett til hliðar og Ríkisendurskoðun lítur á það sem sitt hlutverk að leyna þjóðina í stað þess að upplýsa. Reyndar er það svo að hjá Ríkisendurskoðun hafa lengi viðgengist undarleg vinnubrögð. Til dæmis að gefa út torræðar skýrslur um augljósa spillingu við einkavæðingu bankanna […]
Það er skringilegt að horfa upp á þá lífeyrisforstjórana Gylfa Arnbjörnsson og Vilhjálm Egilsson væla í Jóhönnu Sigurðardóttur, af öllum manneskjum, yfir því að aðgerðir eða aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar kippi stoðum undan kjarasamningum. Þeir félagarnir þurfa enga aðstoð eða hjálp þegar þeir sitja saman í lífeyrissjóðunum að braska með lífeyri landsmanna, þar sem þeir eru í […]
Hver hefði trúað því í september 2008, að eftir stjórnun „hreinnar og tærrar“ vinstri stjórnar að þá væri staðan svona: Seðlabanki Íslands veitir höfuðpaurum hrunsins sérstakan afslátt af íslensku krónunni fyrir það eitt að koma með hluta af þýfinu til baka til landsins. Stjórnvöld leggja það til að festa í sessi illræmt kvótakerfi í sjávarútvegi og færa […]
Setning Alþingis þann 11. september fór fram í skugga víggirðingar og almenns vantrausts á stórum hluta þingheims. Ólafur Ragnar Grímsson forseti flutti þarfa ræðu þar sem að hann minnti þingmenn á hina óþægilegu framangreindu staðreynd. Vantraustið má að mestu leyti rekja til þess að ríkisstjórnin, sem kjörin var til breytinga, hefur helgað krafta sína endurreisn gamla Íslands. Óskir almennings […]
Margir bændur eru í þeim hópi sem á um sárt að binda vegna fautalegrar innheimtu bankanna á ólöglegum gengistryggðum lánum. Það dæmi sem ég hef hér fyrir framan mig er af bændum; hjónum, sem komin eru á sextugsaldur. Þau eru krafin um vel á sjötta hundrað þúsund krónur mánaðarlega í greiðslur af ólöglegu láni. Eftir því sem liðið hefur á árið hafa […]