Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar er fátt sem hönd á festir og er hann harla loðinn. Stjórnarsáttmálinn, sem innblásinn er af ágætum þjóðræknum gildum, tekur jafnvel ekki af öll tvímæli um hvert skuli stefna í Evrópumálum. Viðræðum er ekki slitið heldur er gert hlé á þeim þar til þjóðin hefur sagt sína skoðun á ferlinu. Það sama á við um skuldamál heimila – þau eru sett í nefnd til skoðunar. Fyrir utan þann mikla hvalreka sem mun koma strax í hlut heimilanna við uppgjör bankanna, en gefið er í skyn að hann verði heldur meiri búhnykkur en uppgjör Samvinnutrygginga hér um árið.
Sérfræðinefnd um afnám verðtryggingar af neytendalánum og endurskipulagningu
húsnæðislánamarkaðarins verður skipuð á fyrstu dögum nýrrar ríkisstjórnar og mun skila af sér fyrir
næstu áramót.
Helsta nýmælið sem kveðið er skýrt á um í sáttmálanum er að það eigi að afnema lágmarksútsvar sveitarfélaga. Það mun aftur á móti gagnast mjög fáum heimilum miðað við fjárhagsstöðu sveitarfélaga vítt og breitt um landið. Það er þó helst að von sé til þess í Hvalfjarðarsveit og mögulega í Garðabæ og á Seltjarnarnesi.