Afar ólíklegt er að Ríkislögreglustjóra takist að fæla síldina út úr Kolgrafarfirði og í gegnum það nálarauga sem opnast út í Breiðafjörð.
Aðgerðin er örvæntingafull og óþörf – miklu nær væri að veiða síldina í firðinum þar sem hún er innikróuð. Ein helsta ástæðan fyrir því að veiða ekki, er sú að þá fer síldin ekki í „réttar“ hendur núverandi kvótahafa. Ekki er sturluð sérhagsmunagæsla bundin við núverandi ríkisstjórn því ekki var sú síðasta heldur upp á marga fiska.
Eflaust er þjónkun forystu Vg við sérhagsmuni LÍÚ, orsökin fyrir því að hvorki heyrist hósti né stuna frá flokknum græna vegna sprenginga í náttúru Íslands.