Hvernig má það vera að land sem hefur hærri þjóðartekjur á mann en Þýskaland geti ekki rekið sómasamlega heilbrigðisþjónustu. Hvernig má það vera að land þar sem þjóðartekjur á mann eru svipaður og í Svíþjóð að þá sé almenningur skuldsettur og á lélegum launum. Staðan er furðulegri í ljósi þess að Ísland rekur ekki útgjaldafrekan her. Ástæðan fyrir því að þorri almennings ber svo lítið úr bítum af þeim miklu tekjum sem þjóðfélagið aflar er augljós – landinu er mjög illa stjórnað.
Ég gæti trúað því að stuðningurinn við Fylkisflokkinn sem vill endursameiningu Íslands við Noreg komi úr tveimur áttum, annars vegar frá þeim kjósendum sem eru lítið að pæla í pólitík og vanir að velja það framboð sem býður best og síðan hinn hópurinn sem er orðinn vonlítill á að þjóðin geti sjálf undið ofan af óstjórninni í landinu með því að kjósa ábyrga fulltrúa á Alþingi Íslendinga.
Í sjálfu sér er það undarlegt að þjóð sem aflar svo mikilla tekna sem að framan greinir skuli ljá máls á því að kasta sjáfsfsforræði sínu . Því miður hefur óstjórn síðustu ára opnað á þann möguleika í auknum mæli.