Í þættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun var langt viðtal við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra. Viðtalið vakti athygli mína einkum fyrir tvennt;
Í fyrsta lagi þá vill Bjarni Benediktsson halda áfram að gramsa í eigum almennings, í gegnum nýstofnað einkahlutfélag í eigu ríkisins! Það verða þá trúnaðarmenn hans sem munu úthluta eignum ríkisins. Þjóðin má því eiga von á nýjum Borgunar- og Matorkumálum. Tap þjóðarinnar og gróði aðila nátengdum fjármálaráðherra á Borgunarmálinu nemur hærri upphæð, en gríðarlegum kostnaðarsömum framkvæmdum við Landeyjahöfn. Það eru engin rök fyrir því að fara með sölu eigna ríkis í gegnum einkahlutafélag, enda er eina hlutverk slíkra félaga að takmarka ábyrgð eigenda og mynda skattahagræði fyrir eigendurna – Hvers vegna ættir ríkið að gera það? Ég efast stórlega um að það séu til dæmi annars staðar frá í heiminum um að ríki hafi stofnað til einkahlutfélaga til að sjá um einkavæðingu – Ekki einu sinni í Panama.
Í öðru lagi þá lagði á fjármálaráðherra mikla áherslu á að selja bankana án þess að tryggja aukna samkeppni eða bætt vaxtakjör til almennings og fyrirtækja. Hann hafði engan sérstakan áhuga á að koma á einhverri skipulagsbreytingu á fjármálamarkaði, en áður hefur hann lýst yfir algerri andstöðu við samfélagsbanka. Mér fannst hann tala með léttvægum hætti um það rán sem fram fór á mettíma í íslensku bönkunum, í aðdraganda hrunsins. Ránið olli nokkrum af stærstu gjaldþrotum í viðskiptasögu heimsins! Eflaust hefur fjármálaráðherra sloppið vel sjálfur í hruninu, þrátt fyrir að hafa stýrt fyrirtækjum í tugmilljarða gjaldþrot. Í viðtalinu lýsti hann því að minnsta kosti berum orðum, að öruggt væri að þjóðin muni sigla inn í nýja fjármálakreppu og virtist vera sem að ekki væri um neitt tiltökumál að ræða.
Gamlir kjósendur Sjálfstæðisflokksins ættu að hlusta á viðtalið en í því þá staðfestir Bjarni að hann er fyrst og fremst að gæta hagsmuna 1% þjóðarinnar og á kostnað 99% Íslendinga.