Ég horfði með áhuga á Silfur Egils áðan og það fyrsta sem kom upp í hugann var að það hefði gleymst að bjóða Hreyfingunni. Þátturinn var hins vegar ekki lengi að breytast í einhvers konar gamalkunnugt brotajárn þar sem að strax á fyrstu mínútunum hið hefðbundna Fjórflokkakarp tók yfirhöndina. Þau höfðu skófluna og notuðu hana, illa en […]
Sjaldan, og sennilega aldrei, hefur íslenskt samfélag staðið frammi fyrir eins alvarlegu efnahags- og samfélagslegu vandamáli og því sem skuldir heimilanna vegna hrunsins er orðið að. Samkvæmt spám er gert ráð fyrir að með sama áframahaldi verði 73.000 heimili orðin eignalaus hvað varðar eigið húsnæði árið 2011 eða um 62% allra heimila í landinu. Það er vitað […]
Þetta var skrýtinn dagur á Alþingi í kvöld. Þúsundir manna, átta til tíu þúsund segir lögreglan, mótmæltu í stærstu og hávaðasömustu mótmælum Íslandssögunnar, börðu 200 lítra olíutunnur og köstuðu drasli í Alþingishúsið. Mótmæli sem skákuðu jafnvel 20. janúar 2009, upphafi hins svo kallaða „sex daga stríðs“ þar sem reiptog mótmælenda, lögreglu og stjórnmálamanna leiddi til […]
Hvað varð um Réttlæti? Hvað varð um Loforð? Hvað varð um Heiðarleika? Hvað varð um Ábyrgð? Hvað varð um Jóhönnu? Hvað varð um Vinstri-græn? Hvað varð um lýðræðisumbæturnar? Persónukjörið næst ekki í gegn. Lög um þjóðaratkvæðagreiðslur fást ekki samþykkt. Fjármál stjórnmálaflokka eru áfram gjörspillt með nýjum lögum fjórflokksins. „Úrræðin“ í skuldavanda heimilana eru á við pyntingarklefa. […]
Alþingi brást hlutverki sínu í dag þegar það klúðraði afgreiðslu þingsályktunartillögu þeirrar þingmannanefndar sem Alþingi sjálft kaus til að fjalla um þátt ráðherra og þátt Alþingis í hruninu. Þetta var endapunkturinn á sérstaklega dapurlegu ferli þar sem meirihluti þingmanna einfaldlega hafnaði því að þrír af þeim fjórum ráðherrum sem þingmannanefndin lagði til að færu fyrir Landsdóm bæru […]
Framundan er atkvæðagreiðsla um hvort nokkrir stjórnmálamenn íslenskir séu ábyrgir gerða sinna eða aðgerðaleysis í aðdraganda hrunsins í október 2008. Þingmannanefndin undir forystu þingmanns Atla Gíslasonar hefur skilað ef sér tillögum um að útkljáð skuli um ábyrgð fjögurra ráðherra fyrir Landsdómi. Tillögur þingmannanefndarinnar eru mjög ítarlegar og vel rökstuddar og eftir mikla umræðu og gagnrýni […]
Þá er fyrri umræðu lokið um þingsályktunartillögur þingmannanefndarinnar um hvort eigi að sækja til saka fjóra (þrjá) fyrrverandi ráðherra í hrunstjórn Geirs Haarde. Sjálfur talaði ég í gær og hér er tengill á ræðuna. Það var merkilegt að fylgjast með umræðunni og það kom skýrt fram hversu umræðuhefðin hér á landi er oft innihaldslaus og […]
Það fór ekki beint vel af stað umræðan um ráðherraábyrgð og Landsdóm í þinginu s.l. föstudag. Mikill grátkór Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var nú kominn með gagnsæi á heilann og taldi ófært að umræðan hæfist án þess þingmenn væru búnir að fá að sjá öll gögn málsins og að fresta yrði umræðunni þangað til. Gott og […]
Þar sem ræðurnar frá í gær voru ekki komnar inn á vef þingsins er ég skrifaði færsluna mína set ég hér tengil á ræðuna. Þetta er að mínu eigin mati sennilega besta innleggið mitt á þingið hvað ræður varðar og ég reyndi að vanda mig enda tilefnið mjög mikilvægt. Við, það er Alþingi, samfélagið og […]
Umræðan um skýrslu þingmannanefndarinnar hélt áfram í dag. Umræðunni lauk svo síðdegis og á föstudag verður tekið til við að ræða tillögur þingmannanefndarinnar um ákærur á hendur ráðherrana fjögurra. Umræðan um skýrsluna hefur verið ágæt og menn virðast sammála um að það þurfi að hrinda því í framkvæmd sem nefndin leggur til. Varðandi ákærurunar leikur […]
Nýlegar athugasemdir