(Það er búið að segja þetta mörg hundruð sinnum, en það virðist ekki nægja …) Eftir því sem ég best veit hefur eftirfarandi margendurteknu staðhæfingum ekki verið mótmælt: Núverandi eigendur Arionbanka og Íslandsbanka (sem leynd hvílir yfir hverjir eru) fengu þá upp í kröfur sem þeir áttu á bankana fyrir hrun. Þessir bankar (og Landsbankinn […]
Hann er orðinn síbylja, kórinn um að Ísland þurfi mikla erlenda fjárfestingu. En það gildir sama um hann og ýmsar aðrar staðhæfingar í pólitísku „umræðunni“ á Íslandi: Það eru aldrei færð fram nein rök, og allt of fáu fjölmiðlafólki dettur í hug að spyrja þá út úr sem slíku halda fram. Þangað til einhver rök […]
Magnús Orri Schram skrifaði bloggpistil í dag um kaup Huangs Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum, sem Magnús virðist áfram um, af því að „Ísland þurfi á erlendri fjárfestingu að halda til hagvaxtar“. Þessi gatslitna klisja um að „Ísland þurfi á erlendri fjárfestingu að halda“ er að vísu aldrei rökstudd (sem er sérkennilegt, og þar að […]
Það er búið að eyðileggja mikið af lífríkinu í Lagarfljóti, öfugt við staðhæfingarnar áður en farið var af stað. Hellisheiðarvirkjun dreifir brennisteinsvetni í miklu magni og veldur hörðum jarðskjálftum, sem hvorugt var kynnt áður en framkvæmdir hófust. Í Svartsengi er ekki mikið lengur hægt að dæla affallssvatninu niður í hraunið svo það þarf væntanlega að […]
Bankarnir fengu húsnæðislán með gífurlegum afslætti, en nota þau til að blóðmjólka fólk sem enga ábyrgð ber á hruninu. Þeir eiga mikinn fjölda fyrirtækja í landinu, og engin leið virðist vera að koma í veg fyrir að þeir misnoti það. Þeir afskrifa hundruð milljarða af lánum fjárglæframannna sem settu landið á hausinn og efnahag tugþúsunda […]
Í Háskóla Íslands er talsvert af góðu vísindafólki, og dálítið af fólki sem stendur framarlega á sínu sviði í því alþjóðasamfélagi sem vísindin eru. Hinir eru miklu fleiri, sem ekki standast þær kröfur sem gerðar eru í alþjóðasamfélaginu. Það sem verra er, dragbítar hafa töglin og hagldirnar í valdakerfi skólans, og vinna leynt og ljóst […]
Í nýlegri skýrslu frá Hagdeild ASÍ er álver í Helguvík nefnt tuttugu sinnum, þ.e.a.s. rúmlega einu sinni á blaðsíðu. Þetta vekur upp tvær spurningar: Er Hagdeild ASÍ ekki kunnugt um það sem allir vita sem vilja vita, að það er ekki til, og hefur aldrei verið til, nema örlítill hluti af því rafmagni sem þyrfti […]
Í nýlegri yfirlýsingu Ríkisendurskoðunar segir um kaup embættis Ríkislögreglustjóra á ýmsum búnaði: Að mati Ríkisendurskoðunar fór hluti þessara viðskipta í bága við lög um opinber innkaup. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra getur verið ósammála þessu, en það er vægast sagt sérkennilegt að þetta er haft eftir ráðherra á síðu ráðuneytisins: Ég hef sannfærst um að embætti ríkislögreglustjóra […]
Össur Skarphéðinsson hefur nú bætt rödd sinni í kór þeirra sem ekki mega til þess hugsa að hróflað verði við klíkuveldinu sem ræður lögum og lofum í íslenska valda- og fjármálakerfinu. Því vanheilaga bandalagi sem mótmælaaldan rís nú gegn víða um heim. Össur afhjúpar hér ógeðfelldan hugsunarhátt, sem seint ætlar að deyja: Páll Magnússon var […]
Jæja, þá er nýr ríkissaksóknari, Sigríður J. Friðjónsdóttir, farin að verja misgjörðir forvera sinna í starfi. Það er ekki hlutlaus aðgerð, af hálfu ríkissaksóknara, að tala um „villandi umfjöllun“ og setja dóm Hæstaréttar, einan gagna, á vefsíðu embættisins. Vonandi voru þetta byrjendamistök, og Sigríður lætur framvegis eiga sig að verja þá svívirðu sem framin var […]