Eftirfarandi bréf var ég að senda ríkissaksóknara (Sigríði Friðjónsdóttur), með spurningum vegna „rannsóknar“ hennar á lekamálinu í innanríkisráðuneytinu. Auk þess sem þar er spurt má velta fyrir sér hvort það skipti máli hér að ríkissaksóknari (og lögreglan, sem hefur ekki aðhafst þrátt fyrir kærur) sé undirmaður ráðherrans, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Vissulega á ráðherra ekki að […]
Í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi var fjallað um lekamálið í innanríkisráðuneytinu. Fréttin var kynnt með þessum orðum í upphafi fréttatímans, nokkurn veginn eins og ætla mætti að ráðherrann Hanna Birna hefði sjálf samið innganginn: „Innanríkisráðherrann grunar að umræða um meintan leka á persónuupplýsingum snúist ekki um hælisleitandann heldur um eitthvað allt annað, eins og að koma höggi á hana […]
Í gærkvöldi lenti ég í athyglisverðu atviki í athugasemdakerfinu við þennan pistil Egils Helgasonar á Eyjunni. Það byrjaði með því að ég skrifaði ummæli þar sem ég talaði um heimsku og hroka sem þætti í persónuleika Einars K. Guðfinnssonar, forseta Alþingis. Skömmu síðar gerði Facebook-notandi sem kallar sig „Eyjan“ eftirfarandi athugasemd við það sem ég […]
Fyrir tæpum tveim mánuðum skrifaði ég innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, og ráðuneytisstjóranum Ragnhildi Hjaltadóttur, og spurði um tilurð og dreifingu minnisblaðs sem fjallað var um í þessum pistli og sem mikið hefur verið í fréttum undanfarna mánuði. Ég fékk „svar“ daginn eftir frá Ragnhildi, en það var bara útúrsnúningar og engu svarað af því sem ég […]
[Breytt kl. 21:58, 7. apríl 2015: Mér hefur verið bent á að staðhæfing mín í þessum pistli um samband Háskóla Íslands og forstjóra Hjartaverndar, sé röng. Ég vil ekki breyta pistlinum svo löngu eftir að hann er skrifaður, en set athugasemd við þetta í honum sjálfum líka. Og biðst hér með afsökunar á þessu ranghermi […]
Í Kastljósi í gærkvöldi byrjaði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, á því að útskýra að Samtök atvinnulífsins hefðu í upphafi viðræðna um nýgerða kjarasamninga lýst yfir að þau vildu ekki meira en 2% launahækkun, og Gylfi talaði eins og það hefði gert samningana erfiða. Gylfi endurtók þessa möntru nokkrum sinnum í þættinum, í svolítið mismunandi formi. […]
Fyrir tæpum þrem árum skrifaði ég pistil með fyrirsögn sem átti að vera háðsádeila á það fáránlega fyrirkomulag að flokkarnir á Alþingi velji fulltrúa sína í Landskjörstjórn. Fyrirsögnin, sem var uppspuni, var „Bankarnir skipa stjórn Fjármálaeftirlitsins“ og ég hélt sem sagt að hugmyndin væri svo biluð að lesendur skildu þannig hversu fráleitt mér finnst að flokkarnir […]
Fyrir fáum vikum hneykslaðist innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, á því að andstæðingar trúboðs ríkiskirkjunnar í skólum vildu „forða börnunum okkar frá boðskap um … kærleika“. Hanna Birna er ekki svo illa gefin að hún viti ekki að þetta eru ósannindi sem hún fór með. Hún veit líka að það er ekki í anda kristilegs kærleika […]
Sögnin að fatlast hefur nokkrar merkingar, þar á meðal að forfallast (fatlast frá verki) og að skaðast eða meiðast. Það er væntanlega það sem Vigdís Finnbogadóttir átti við þegar hún sagði að RÚV hefði fatlast svolítið. Að orðið þýði líka að missa einhverja hæfni sem venjuleg er meðal fólks gerir ekki að verkum að orðið […]
Svo virðist sem margir skilji ekki hvernig 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi virkar, svo ég ætla að útskýra hvernig þetta gerist: Ég les grein eftir Hrafnhildi Ragnarsdóttur um að íslenskir karlmenn séu allir meðlimir i þeirri ógnarstjórn sem kúgar konur og beitir þær ofbeldi, eða grein eftir Stefán Mána um að það sé kynbundið […]