Í drögum að ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins kemur fram:
Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að stjórnvöld hindri ekki fjárfestingu innlendra og erlendra einkaaðila í orkuverum, hvorki í formi lánsfjár né hlutafjár, telji fjárfestar slíkar framkvæmdir vera arðbærar. Skoða skal með opnum huga að skrá á hlutabréfamarkað hluta hlutabréfa Landsvirkjunar (svokölluð norsk leið).
Ómögulegt er á átta sig á því hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn vill selja einokunarfyrirtækið en það mun örugglega leiða til stórhækkaðs orkuverðs fyrir fyrirtæki og almenning. Mögulega er einungis um kalt mat formannsins að ræða rétt eins og í Icesave-málinu.
Eitt er víst að Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar mun ekki þvælast neitt fyrir sölumönnunum í Sjálfstæðisflokknum enda hefur hann horft mjög til sölu Landsvirkjunar.