Það dylst fáum sem fylgjast með nýjum forsætisráðherra að brúnin er farin að þyngjst á Sigmundi Davíð, enda hefur honum ekkert orðið ágengt í að kynna raunverulegar lausnir til lausnar á skuldamálum heimilanna. Nú er hann jafnvel farinn að gefa það í skyn að lítið verði að frétta af úrbótum fyrr en í fyrsta í lagi í haust.
Boðaðar tafir Framsóknarflokksins á aðgerðum í þágu heimilanna hljóta að koma landsmönnum í opna skjöldu þar sem að stjórnarmyndunarviðræður voru á forsendum flokksins og þegar þær voru í höfn var kynnt, með miklum lúðrablæsti, að ráðist yrði strax í skuldamálin.
Ráðamenn verða að gefa nánari skýringar á því hvað tefur boðaðar aðgerðir sem í kosningabaráttunni voru sagðar verða að koma til framkvæmda án nokkurra tafa.
Mögulega er sú skýring rétt, sem borist hefur innan úr herbúðum Framsóknar, að samstarfsflokkurinn sé að draga lappirnar og leggi áherslu á enn frekari útreikninga á hinum ýmsu útfærslum áður en leiðir verða kynntar. Eitt er þó víst að með hverjum deginum sem líður í aðgerðarleysi fyrir heimilin á meðan mál sem snúa að því að létta álögum af auðlegðarfólki fá flýtimeðferð á stjórnarheimilinu, að þá mun fjara fljótt undan Framsóknarflokknum.