Meirihluti hlutafjár Icelandair er með einum eða öðrum hætti í eigu lífeyrissjóða landsmanna. Fyrirtækið var endurreist af lífeyrissjóðunum eftir að hafa verið tæmt í aðdraganda hrunsins. Nokkrir frægir „viðskiptajöfrar“ komu að rekstrinum í þá daga. Ýmsar fléttur voru hnýttar til þess að draga fé út úr félaginu sem enn er verið að greiða úr.
Forstjóri Icelandair sem áður var formaður LÍÚ notfærir sér þá reynslu sína að nýta þjónustu stjórnvalda og Alþingis þegar einhverjir hagsmunir eru að veði. Í stað þess að eyða löngum stundum inni á erfiðum samningafundum með flugvirkjum hefur það án efa verið handhægara að kalla þingið saman til þess að setja lög á starfsmenn fyrirtækisins.
Spurningin sem vaknar er hvort þessi aðferð stjórnenda Icelandair sé gerð með vilja eigenda fyrirtækisins, þ.e. launþegahreyfingarinnar.