Katrín Jakobsdóttir hefur um nokkurt skeið verið vinsælust af leiðtogum fjórflokksins, en pólitískar áherslur hennar hafa verið á reiki. Mér fannst því fróðlegt að fara í gegnum ályktanir landsþings Vg sem hljóta að einhverju leyti að endurspegla áherslur formannsins sem leitt hefur flokkinn í 2 ár.
Af ályktunum á nýliðnu landsþingi Vg má ráða að flokkurinn vijli gefa það út að hann sé róttækt afl umhverfisverndar og réttlátra breytinga í samfélaginu.
Það er erfiðleikum bundið fyrir núverandi forystu flokksins að halda framangreindu á lofti, þar sem flokkurinn endurreisti á síðasta kjörtímabili óbreytt fjármálakerfi og stóð vörð um óréttlátt kvótakerfi. Fyrrverandi formaður með stuðningi Katrínar Jakobsdóttur, stóð fyrir umdeildri risastórri einkaframkvæmd þ.e. Vaðlaheiðagöngum. Á sviði umhverfismála þá beitti forysta Vg sér fyrir að koma á fót ríkisstyrktri stóriðju að Bakka. Ríkisstjórn Vg og Samfylkingar á jafnframt heiðurinn af því að gefa út rannsóknarleyfi til vinnslu á olíu á Drekasvæðinu. Ályktanir um framangreind mál á nýafstöðnu landsþingi sem vísa í þveröfugua átt við verk ráðamanna flokksins eru mjög ótrúverðugar, nema þá ef flokkurinn gerir upp við fortíð sína í ríkissjórn Steingríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurðardóttur.
Ekki virðist sem að Vg undir forystu Björns Vals og Katrína Jakobsdóttur leggi nokrra áherslu á að taka á vaxtaokri eða verðtryggingu – Nei önnur mál eru sett ofar á blaði s.s. fordæming kynjatvíhyggjunnar sem bitnar að sögn landfundarmanna víst harkalega á transfólki. Ekki kemur fram hvernig flokkurinn muni beita sér í málinu. Ný samþykkt ályktun Vg um jafnréttismál og baráttu gegn illa skilgreindu en vopnuðu feðraveldi er ekki síður áhugaverð en henni lýkur með með slagorðinu:
Áfram konur! Fokk feðraveldið! Lifi byltingin
Það verður fróðlegt að fylgjast með hvort að ályktanir flokksþingsins muni eiga hljómgrunn hjá almenningi. Það er ljóst í mínum huga að núverandi forysta Vg ætlar ekki frekar en aðrir angar fjórflokksins að leggja nokkra áherslu á að hreyfa við stóru hagsmunamálum samfélagsins á borð við að lækka vaxtakostnað, taka á spillingu kvótakerfisins og endurskoða lífeyrissjóðakerfið.