Stofnun á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að sænsk og bresk stjórnvöld hafi beitt forvígismann Wikileaks, Julían Assange, ólögmætri frelsissviptingu. Það er augljóst að ríkin voru handbendi BNA í málinu. Bandarísk stjórnvöld vildu koma fram hefndum gegn Wikileaks, sem upplýsti um vafasaman stríðsrekstur og mannréttindabrot Bandaríkjamanna. Ólíklegt er að bresk stjórnvöld kippi sér upp við niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna, en Bretar eru ýmsu vanir m.a. stríðsaðgerðum á upplognum forsendum.
Það verður fróðlegra að fylgjast með hvernig heilög sænsk stjórnvöld undir forystu jafnaðarmanna, munu bregðast við – Það hefði einhvern tíman þótt tíðindum sæta ef Svíar virtu af vettugi niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna um mannréttindamál.