Alþingi hneykslast nú mjög á þeirri ætlan Sjóvár að hafa ætlað að greiða hluthöfum sínum miknn arð. Til þess að standa undir arðgreiðslunum átti ekki einungis að hækka iðgjöld, heldur einnig að ganga á bótasjóð félagsins.
Það kom nokkuð á óvart að þeir þingmenn sem leiddu vandlætingarumræðuna voru engir aðrir, en þeir Steingrímur J. Sigfússon og Bjarni Benediktsson.
Steingrímur, sletti í Sjóvá á annan tug milljarða króna af skattfé almennings, til þess að félagið gæti starfað áfram eins og ekkert hefði í skorist, eftir að það hafði lent í því að bótasjóðir félagsins voru tæmdir í aðdraganda hrunsins.
Bjarni Benediktsson tengdist einmitt með beinum hætti, en óafvitandi að eigin sögn, inn í þá viðskiptafléttu Vafningsmanna, sem var stór liður í að tæma bótasjóð Sjóvár á sínum tíma, með fjárfestingaævintýri í Asíu. Ekki virðist sem fjárglæfrir Vafningsmanna, sem bitnuðu með beinum hætti á skattborgurum hafi orðið til þess að setja þá til hliðar í frekari viðskiptum við hið opinbera. Í stað þess þá fengu þeir nýlega kreditkortafyrirtækið Borgun afhent á vildarkjörum hjá Landsbankanum.Eins og áður þá sagðist fjármálaráðherra ekkert hafa vitað um málið.
Lái mér hver sem vill en ég trúi hæfilega að hugur fylgi máli í hneykslun þeirra, fyrrverandi og núverandi fjármálaráðherra.