Forysta ASÍ hefur í félagi við áhrifamenn innan Samtaka atvinnulífsins verið leiðandi í íslensku fjármálakerfi. Þetta einkennilega samstarf ASÍ og SA á sér stað í gegnum stjórnir í lífeyrissjóðanna sem ráðstafa drjúgum hluta af launaveltu landsmanna. Fjármálavafstur forystu ASÍ hefur leitt af sér að óskýra hagsmunavörslu þar sem greinilegt er að hagsmunir almenns launafólks eru komnir neðarlega á blaðið en í öndvegi er að tryggja óbreytt kerfi og völd. Þetta samkrull ASÍ og fjáramálakerfisins hefur staðið um áratugaskeið, en ekki þótti það tiltökumál á sínum tíma þegar fyrrum forseti ASÍ réð sig í framkvæmdastjórastól Íslandsbanka í beinu framhaldi af setu á forsetastóli ASÍ. Það kæmi í sjálfu sér alls ekki á óvart ef að núverandi forseti ASÍ færi sömu leið á næstunni.
Afleiðingarnar af fjármálabraski forystu ASÍ eru meðal annars þær að forystan hefur þegar á reynir staðið fast með þröngum hagsmunum stórfyrirtækja þrátt fyrir að augljóst sé að það sé á kostnað þorra launafólks. Forysta ASÍ hefur staðið með verðtryggingunni, kvótakerfinu í sjávarútvegi, endurreisn óbreytts fjármálakerfis og braskara á borð við Bakkavararbræðra. Að vísu stóð forysta ASÍ með almenningi í furðulegum endurútreikningum Seðlabankans á ólöglegum gengistryggðum lánum.
Þessi einkennilega mynd er að framkallast með skýrari hætti hugum landsmanna í ýmsum málum m.a. í fjárfestingum og að því virðist samstarfi lífeyrissjóðanna við Gamma. Fjárfestingarfélagið Gamma virðist hafa ótæmandi aðgang að fjármunum lífeyrissjóðanna til kaupa á húsnæði sem síðan er leigt út dýrum dómi til launafólks. Skyldusparnaður launafólks er með þessu hætti notaður til þess að spenna upp verð á fasteignum og koma á okurleigu. Launþegar vilja frekar fara þá leið sem formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson boðar þ.e. að bjóða húsnæði á sanngjörnu verði og stöðva græðgisvæðingunar á húsnæðismarkaði einkum á höfuðborgarsvæðinu.
Allt tal forseta ASÍ um samstöðu snýst þegar öllu á botninn er hvolft um áframhaldandi brask og völd nokkurra forystumanna launþega á kostnað almennings.