Í kvöldfréttum RÚV var langur kafli um skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið McKinsey hefur skrifað um íslenskt efnahagslíf. Þar er ýmsu haldið fram, bæði hlutum sem lengi hafa verið vitaðir og eru varla fréttaefni (Íslendingar vinna langan vinnudag og framleiðnin er lítil á vinnustund), og öðru sem vonlaust er að spá fyrir um arðsemina á, eins og […]
Í síðustu viku féll dómur í máli Maríu Jónsdóttur gegn Landsbankanum (og um það var fjallað í Silfri Egils í dag). Í stuttu máli hafði bankinn ekki staðið við það sem hann hafði lofað þegar María seldi fasteign og keypti aðra. Dómurinn er langur og ítarlegur, en þar stendur meðal annars þetta: „Það er mat […]
Í pistli í síðustu viku greindi ég frá póstskiptum mínum við Skúla Helgason alþingismann. Í kjölfarið var lesið upp úr pistlinum í útvarpsþættinum Harmageddon, sem leiddi til þess að Skúli fór fram á að fá að koma í þáttinn, og þar vorum við báðir næsta dag. (Svolítill útdráttur úr þættinum og tengill á hann koma […]
Kæri Páll Svona leit dagskrá RÚV út daginn sem einhver mikilvægasta þjóðaratkvæðagreiðslan í sögu landsins fór fram: http://dagskra.ruv.is/dagskra/2012/10/20/ Nú þarf einhver að segja af sér á RÚV vegna hneykslisins. Því miður er ekki hægt að reka dagskrárstjórann, því hún hljóp út í fússi fyrir tveim vikum. Þá verður næsti yfirmaður hennar að segja af sér, sem ég held að sé þú, sorrí … Bæbæ, E […]
Hér að neðan eru póstskipti mín víð Fréttastofu RÚV um tvennt: Annars vegar að RÚV hefur ekki kynnt neinar skoðanakannanir vegna atkvæðagreiðslunnar um stjórnarskrármálið. Svo virðist sem það sé fyrirtæki úti í bæ sem ákveður um hvaða mál slíkar kannanir birtast í RÚV. Hins vegar furðaði ég mig á að Spegillinn skyldi, í síðustu viku, […]
Það er unnið að því hörðum höndum þessa dagana að auka til muna stríðsreksturinn í „stríðinu við klámið“. Helstu fréttir síðustu daga hafa verið af klámráðstefnu sem haldin var af velferðar- , innanríkis- og menntamálaráðuneytinu. Aðalstjarnan á ráðstefnunni var Gail Dines, sem kynnt er sem fræðimaður (sem virðast miklar ýkur, ef ekki hreinn þvættingur, sjá […]
Á þriðjudaginn í síðustu viku var Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, í viðtali í Speglinum um tillögu Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Þar var hann meðal annars spurður um ákvæði um persónukjör í tillögunni, og svaraði svo: „Niðurstaða allra þroskaðra lýðræðiskerfa er að flokkar gegni hlutverki í lýðræðislegum stjórnmálum sem ekki sé hægt að komast fram hjá. Þannig […]
Jónína Rós Guðmundsdóttir þingmaður bendir í dag á þann kynjahalla sem er viðvarandi á landsbyggðinni, þar sem konur, sérstaklega ungar konur, flytja í miklu meiri mæli í þéttbýlið en karlar. Ekki er ótrúlegt að þetta stafi meðal annars af því að konur fara miklu frekar í háskólanám en karlar; fjöldi kvenna í háskólanámi mun vera um tvöfaldur […]
Í gær fékk ég fréttir af því, eftir krókaleiðum, að ef til vill væri ekki allt eins og það ætti að vera varðandi úttektina á Orkuveitu Reykjavíkur, en skýrslan um úttektina var afhent borgarstjóra í síðustu viku. Það á svo að kynna hana á miðvikudag fyrir „eigendum“, þ.e.a.s. þeim sem fara með eigendavaldið í þessu […]
Fáum virðist finnast það tiltökumál sem ég gerði að umræðuefni í pistli í gær, hvernig fólk í valdastöðum á Íslandi heldur leyndum upplýsingum sem almenningur ætti að fá aðgang að um leið og valdafólkið. Mér finnst þetta satt að segja ein versta blindan þegar kemur að þeim kröfum sem fólk leyfir sér að hafa í […]