Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Þriðjudagur 25.11 2014 - 10:15

Útvistun: Saumað að láglaunafólki

[Þessi grein birtist í Kvennablaðinu í gær] Talsvert hefur verið fjallað í fjölmiðlum síðustu daga um útvistun á ræstingum í opinberum stofnunum, eins og Landspítalanum og Stjórnarráðinu. Í gær skýrði ég hér frá tilraunum mínum til að fá upplýsingar um ástæðurnar að baki því að Rekstrarfélag Stjórnarráðsins sagði nýlega upp sautján ræstingakonum, í því skyni að […]

Mánudagur 24.11 2014 - 10:15

Að reka ræstingakonur

[Þessi grein birtist fyrst í Kvennablaðinu 23. nóvember] Fyrir nokkrum vikum sagði Rekstrarfélag stjórnarráðins upp sautján ræstingakonum sem starfað hafa í Stjórnarráðinu.  Rekstrarfélagið sér um ýmsan rekstur fyrir þau fimm ráðuneyti sem eiga aðild að því, en það eru fjármála-, mennta- og menningarmála-, innanríkis-, forsætis- og umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Eftirtaldir starfsmenn viðkomandi ráðuneyta skipa stjórn […]

Fimmtudagur 13.11 2014 - 10:15

Útlendingafordómar hjá Árna Páli, eða …?

[Þessi grein birtist fyrst í Kvennablaðinu í gær] Í ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar þann 1. nóvember síðastliðinn sagði formaður flokksins, Árni Páll Árnason, meðal annars þetta: „Íslendingar með meiri menntun flytja utan. Útlendingar með litla skólagöngu flytja til landsins.“ Ég sendi Árna Páli tölvupóst fyrir viku (og síðan tvær ítrekanir) og spurði hvað hann hefði […]

Miðvikudagur 12.11 2014 - 12:58

Hneyksli ef saksóknari áfrýjar ekki í lekamáli

Í dag féll dómur í lekamálinu, eftir að Gísli Freyr Valdórsson, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, játaði sök sína í gær. Mál þetta hefur staðið í tæpt ár, valdið gríðarlegum átökum í samfélaginu, rýrt verulega tiltrú almennings til stjórnsýslunnar, orðið til þess að ráðuneyti hefur verið skipt upp, tekið umtalsverðan tíma frá starfi Alþingis og kostað samfélagið tugi […]

Miðvikudagur 05.11 2014 - 10:15

Löggan má drepa þig. Þú mátt ekki vita af hverju.

Í gær fengu nokkrir þingmenn, þeir sem sitja í allsherjar- og menntamálanefnd, að skoða þær reglur sem lögreglan hefur sett um notkun sína á vopnum. Það hefur væntanlega verið lögreglan sjálf sem allra náðarsamlegast leyfði nokkrum manneskjum á þinginu, sem á að fara með æðsta vald þjóðarinnar, að berja augum þessar leynilegu reglur, með því […]

Mánudagur 13.10 2014 - 10:15

Ósannindamanneskjan Þórey Vilhjálmsdóttir

Þórey Vilhjálmsdóttir, sem enn er aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem enn er innanríkis-(en ekki dóms- og lögreglumála-, en samt hælisleitendamála)ráðherra, hefur stefnt tveim blaðamönnum DV fyrir meiðyrði. Ástæðan er að þeir héldu því fram að Þórey væri „starfsmaður B“, sem nefndur var í dómi héraðsdóms í lekamálinu. Örfáum klukkutímum eftir að þetta ranghermi birtist í […]

Föstudagur 10.10 2014 - 19:51

Landlæknir mælir með fækkun einkabíla

Yfirlýsing frá Landlækni  (sem lesa má hér) vegna frumvarps til laga um verulegar takmarkanir á innflutningi bifreiða til einkanota: Rannsóknir sýna að bifreiðaslys valda gríðarlegu tjóni á heilsu þeirra sem í þeim lenda, og einnig gífurlegum kostnaði heilbrigðiskerfisins vegna umönnunar og endurhæfingar þeirra sem lifa af. Einnig hafa rannsóknir sýnt að aðstandendur þeirra sem lenda […]

Þriðjudagur 07.10 2014 - 10:15

Ekki vara við ef hætta er á ferðum!

Í lögum um Fjármálastöðugleikaráð stendur eftirfarandi: „Fjármálastöðugleikaráð birtir tilmæli sín og rökstuðning fyrir þeim í heild eða að hluta, nema birting þeirra geti haft neikvæð áhrif á fjármálastöðugleika. Fari stjórnvald ekki að tilmælum fjármálastöðugleikaráðs skal einnig birta skriflegan rökstuðning viðeigandi stjórnvalds nema birtingin geti haft neikvæð áhrif á fjármálastöðugleika.“ Hversu vel gafst þessi leyndarhyggja, til […]

Miðvikudagur 24.09 2014 - 11:02

Alnafna dóttur þingflokksformannsins

Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir „stofnun rannsóknarklasa á sviði taugavísinda og taugahrörnunarsjúkdóma“.  Ýmsir hafa látið heyra það í sér að ekki sé gott að þingmenn reyni að handstýra vísindastarfi í landinu, enda sé ómögulegt að sjá fyrir á hvaða sviðum líklegast sé að framfarir verði […]

Föstudagur 12.09 2014 - 12:37

Skinkumelluhugmyndafræði í Flensborg

Eftirfarandi grein birtist í Kvennablaðinu í gær.   Þess má geta að ég skrifaði Magnúsi skólameistara í Flensborg í fyrrakvöld og bar upp nokkrar spurningar um þá „hugmyndafræði“ sem hann segir að karakterar skemmtikraftanna umræddu samrýmist ekki.  Magnús vildi ekki svara, en spurði í staðinn í hvaða tilgangi ég kallaði eftir svörum við þessu.  Ég […]

Höfundur

Einar Steingrímsson
Nánar um höfund ...
RSS straumur: RSS straumur