Í Morgunblaðinu 27. janúar 2021 kennir Ólafur Sigurðsson, fyrrverandi fréttamaður, nýfrjálshyggju um flest það, sem aflaga hefur farið í heiminum síðustu fimmtíu árin og ber fyrir því tvo kunna vinstri menn bandaríska, Joseph Stiglitz hagfræðing og Robert Kuttner fréttamann. En hvað er nýfrjálshyggja? Flestir geta verið sammála um, að hún sé sú skoðun, sem Friedrich […]
Þegar ég stundaði forðum heimspekinám, var okkur kennt um „rakhníf Occams“. Vilhjálmur af Occam var enskur munkur af reglu heilags Frans frá Assisi, og var hann uppi frá 1285 til 1349. Rakhnífur Occams merkir þá reglu, að jafnan beri að velja einföldustu skýringuna, sem völ sé á. Þessi regla er oftast orðuð svo á latínu: […]
Oft er með réttu talað um mikil áhrif Halldórs Laxness á hreyfingu íslenskra kommúnista og vinstri sósíalista. Minna hefur verið rætt um áhrif helstu íslensku stalínistanna á skáldið. Hér skal ég nefna tvö dæmi um bein áhrif Einars Olgeirssonar og Brynjólfs Bjarnasonar á Laxness. Eftir að Laxness hafði gefið út Sölku Völku, birti Einar greiningu […]
Davíð Oddsson er 73 ára í dag. Ég skrifaði af því tilefni grein um hann í The Conservative.
Ég er orðinn fastur dálkahöfundur í The Conservative, sem íhalds- og umbótaflokkarnir í Evrópu gefa út á netinu. Ég skrifa þar að meðaltali tvisvar í viku um hin ýmsu mál, árásina á þinghúsið bandaríska, þöggunartilburði bandarísku netrisanna, boðskap Burkes til okkar, kenningar Actons um söguna, misráðna fiskveiðistefnu Evrópusambandsins, heimsókn Churchills til Íslands 1940, afskræminguna af Thatcher […]
Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar skrifar á Facebook: Víða sér maður fólk dásama Ísraelsríki fyrir góða frammistöðu við að bólusetja sitt fólk. Sitt fólk. Bara sitt fólk. Palestínuþjóðin á herteknu svæðunum fær ekkert. Sjaldan hefur maður séð jafn svart á hvítu það ranglæti sem þetta ríki er reist á. Ég svaraði: Þessi færsla lýsir miklum […]
Heimsbyggðin fylgdist agndofa með því, er æstur lýður braust 6. janúar inn í bandaríska þinghúsið. Er með ólíkindum, að hann hafi komist svo langt. Það er fróðlegt siðferðilegt úrlausnarefni, hver ber ábyrgðina. Auðvitað ber þessi óþjóðalýður, eins og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra kallaði hann réttilega, mestalla ábyrgðina, en einhverja sök á einnig Donald Trump Bandaríkjaforseti. […]
Oftast er ágreiningur í stjórnmálum þess eðlis, að ekki verður með fullri vissu úr honum skorið, enda er lífið undirorpið óvissu. Hef ég drepið mann eða hef ég ekki drepið mann? spurði Jón Hreggviðsson. Enginn vissi með fullri vissu, hvað hafði gerst, þegar Sigurður böðull sálaðist. Þó eru til mál, sem atvikin hafa hagað því […]
Nýlegar athugasemdir