Færslur fyrir janúar, 2021

Laugardagur 30.01 2021 - 05:06

Hvað er nýfrjálshyggja?

Í Morgunblaðinu 27. janúar 2021 kennir Ólafur Sigurðsson, fyrrverandi fréttamaður, nýfrjálshyggju um flest það, sem aflaga hefur farið í heiminum síðustu fimmtíu árin og ber fyrir því tvo kunna vinstri menn bandaríska, Joseph Stiglitz hagfræðing og Robert Kuttner fréttamann. En hvað er nýfrjálshyggja? Flestir geta verið sammála um, að hún sé sú skoðun, sem Friedrich […]

Laugardagur 23.01 2021 - 07:10

Rakhnífur Occams

Þegar ég stundaði forðum heimspekinám, var okkur kennt um „rakhníf Occams“. Vilhjálmur af Occam var enskur munkur af reglu heilags Frans frá Assisi, og var hann uppi frá 1285 til 1349. Rakhnífur Occams merkir þá reglu, að jafnan beri að velja einföldustu skýringuna, sem völ sé á. Þessi regla er oftast orðuð svo á latínu: […]

Laugardagur 23.01 2021 - 06:52

Laxness: Lærisveinn Einars og Brynjólfs

Oft er með réttu talað um mikil áhrif Halldórs Laxness á hreyfingu íslenskra kommúnista og vinstri sósíalista. Minna hefur verið rætt um áhrif helstu íslensku stalínistanna á skáldið. Hér skal ég nefna tvö dæmi um bein áhrif Einars Olgeirssonar og Brynjólfs Bjarnasonar á Laxness. Eftir að Laxness hafði gefið út Sölku Völku, birti Einar greiningu […]

Sunnudagur 17.01 2021 - 22:41

Afmælisgrein um Davíð

Davíð Oddsson er 73 ára í dag. Ég skrifaði af því tilefni grein um hann í The Conservative.

Sunnudagur 17.01 2021 - 07:58

Dálkahöfundur á The Conservative

Ég er orðinn fastur dálkahöfundur í The Conservative, sem íhalds- og umbótaflokkarnir í Evrópu gefa út á netinu. Ég skrifa þar að meðaltali tvisvar í viku um hin ýmsu mál, árásina á þinghúsið bandaríska, þöggunartilburði bandarísku netrisanna, boðskap Burkes til okkar, kenningar Actons um söguna, misráðna fiskveiðistefnu Evrópusambandsins, heimsókn Churchills til Íslands 1940, afskræminguna af Thatcher […]

Mánudagur 11.01 2021 - 12:47

Svar við færslu Guðmundar Andra

Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar skrifar á Facebook: Víða sér maður fólk dásama Ísraelsríki fyrir góða frammistöðu við að bólusetja sitt fólk. Sitt fólk. Bara sitt fólk. Palestínuþjóðin á herteknu svæðunum fær ekkert. Sjaldan hefur maður séð jafn svart á hvítu það ranglæti sem þetta ríki er reist á. Ég svaraði: Þessi færsla lýsir miklum […]

Laugardagur 09.01 2021 - 08:09

Árásirnar á þinghúsin

Heimsbyggðin fylgdist agndofa með því, er æstur lýður braust 6. janúar inn í bandaríska þinghúsið. Er með ólíkindum, að hann hafi komist svo langt. Það er fróðlegt siðferðilegt úrlausnarefni, hver ber ábyrgðina. Auðvitað ber þessi óþjóðalýður, eins og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra kallaði hann réttilega, mestalla ábyrgðina, en einhverja sök á einnig Donald Trump Bandaríkjaforseti. […]

Laugardagur 02.01 2021 - 07:49

Hef ég drepið mann?

Oftast er ágreiningur í stjórnmálum þess eðlis, að ekki verður með fullri vissu úr honum skorið, enda er lífið undirorpið óvissu. Hef ég drepið mann eða hef ég ekki drepið mann? spurði Jón Hreggviðsson. Enginn vissi með fullri vissu, hvað hafði gerst, þegar Sigurður böðull sálaðist. Þó eru til mál, sem atvikin hafa hagað því […]

Höfundur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.


Nýjustu bækur hans eru Twenty Four Conservative-Liberal Thinkers, sem hugveitan New Direction í Brüssel gaf út í tveimur bindum í árslok 2020, Bankahrunið 2008 og Communism in Iceland, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gaf út árið 2021, og Landsdómsmálið, sem Almenna bókafélagið gaf út í desember 2022. Hann hefur gefið út átta bókarlangar skýrslur á ensku. Sjö eru fyrir hugveituna New Direction í Brüssel: The Nordic Models og In Defence of Small States (2016); Lessons for Europe from the 2008 Icelandic Bank Collapse, Green Capitalism: How to Protect the Environment by Defining Property Rights og Voices of the Victims: Towards a Historiography of Anti-Communist Literature (2017); Why Conservatives Should Support the Free Market og Spending Other People’s Money: A Critique of Rawls, Piketty and Other Redistributionists (2018). Ein skýrslan er fyrir fjármálaráðuneytið, Foreign Factors in the 2008 Bank Collapse (2018). Hann er ritstjóri Safns til sögu kommúnismans, ritraðar Almenna bókafélagsins um alræðisstefnu, en nýjasta bókin í þeirri ritröð er Til varnar vestrænni menningu: Ræður sex rithöfunda 1950–1958. Árin 2017 og 2018 birtust eftir hann þrjár ritgerðir á ensku um frjálshyggju á Íslandi, Liberalism in Iceland in the Nineteenth and Twentieth Centuries, Anti-Liberal Narratives about Iceland 1991–2017 og Icelandic Liberalism and Its Critics: A Rejoinder to Stefan Olafsson.  

RSS straumur: RSS straumur

Nýlegar athugasemdir