Færslur fyrir desember, 2020

Laugardagur 19.12 2020 - 12:50

Afturköllunarfárið

Siðfræðingarnir uppi í Háskóla eru fljótir að taka til máls, þegar menn af hægri væng eru taldir misstíga sig. Til dæmis hefur Henry Alexander Henrysson krafist þess opinberlega, að Illugi Gunnarsson, þingmenn Miðflokksins og Kristján Þór Júlíusson segi af sér, ýmist fyrir vináttu við aðra eða ógætileg ummæli í einkasamtölum. En ég hef ekki orðið […]

Laugardagur 12.12 2020 - 08:38

Ólíkt höfðust prófessorarnir að

Fyrir nokkrum dögum bar ég til grafar dr. Erlend Haraldsson sálfræðiprófessor. Ungur hafði hann farið í svaðilför til Kúrdistan, en því svæði er skipt upp milli fjögurra ríkja, Tyrklands, Íraks, Írans og Sýrlands. Kúrdar eru sérstök þjóð, sem talar kúrdísku, en hún er skyld persnesku. Sæta þeir síharðnandi ofsóknum í Tyrklandi. Erlendur samdi árið 1964 […]

Laugardagur 12.12 2020 - 08:38

Nokkrar fleiri villur í bók Kjartans um kommúnista

Í ritdómi mínum í Morgunblaðinu 10. desember 2020 um bók Kjartans Ólafssonar, Drauma og veruleika (í næsta bloggi hér á undan) nefndi ég nokkrar villur í bókinni. Þær eru margar fleiri, þótt ég vildi ekki eyða of miklu rými í að telja þær upp. Hér eru nokkrar smávægilegar, ef  bókin verður einhvern tíma endurprentuð (en […]

Föstudagur 11.12 2020 - 04:46

Ritdómur um bók Kjartans Ólafssonar

Um Kommúnistaflokkinn og Sósíalistaflokkinn Draumar og veruleiki Stjórnmál í endursýn eftir Kjartan Ólafsson Mál og menning, 2020. 568 bls. Á jóladag 1991 var hinn rauði fáni Ráðstjórnarríkjanna dreginn niður í síðasta sinn í Kremlkastala. Mannfrekasta tilraun mannkynssögunnar hafði mistekist, en saga hennar er rækilega rakin í Svartbók kommúnismans, sem kom út á íslensku 2009 og […]

Laugardagur 05.12 2020 - 08:09

Upprifjun um Atómstöðina

Furðulegt upphlaup varð á dögunum, þegar Halldór Guðmundsson bókmenntaskýrandi hélt því fram, að Bjarni Benediktsson og bandarísk stjórnvöld hefðu í sameiningu komið í veg fyrir, að bækur Halldórs Laxness kæmu út í Bandaríkjunum eftir 1946, en það ár birtist þar Sjálfstætt fólk og seldist bærilega, enda valbók einn mánuðinn í Mánaðarritafélaginu (Book-of-the-Month Club). Gallinn við […]

Laugardagur 05.12 2020 - 07:39

Orð Hayeks staðfest

Einar Már Jónsson fornfræðingur minnist á mig í pistli sínum á Stundinni 3. desember 2020, og er ekki nema sjálfsagt, að ég svari honum stuttlega. Hann telur, að frjálshyggjumenn hafi gert gagnbyltingu í hugmyndaheiminum, náð hinu andlega forræði, sem ítalski marxistinn Antonio Gramsci taldi mikilvægast. Þeir hafi nú að vísu misst þetta andlega forræði, en haldi […]

Höfundur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.


Nýjustu bækur hans eru Twenty Four Conservative-Liberal Thinkers, sem hugveitan New Direction í Brüssel gaf út í tveimur bindum í árslok 2020, Bankahrunið 2008 og Communism in Iceland, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gaf út árið 2021, og Landsdómsmálið, sem Almenna bókafélagið gaf út í desember 2022. Hann hefur gefið út átta bókarlangar skýrslur á ensku. Sjö eru fyrir hugveituna New Direction í Brüssel: The Nordic Models og In Defence of Small States (2016); Lessons for Europe from the 2008 Icelandic Bank Collapse, Green Capitalism: How to Protect the Environment by Defining Property Rights og Voices of the Victims: Towards a Historiography of Anti-Communist Literature (2017); Why Conservatives Should Support the Free Market og Spending Other People’s Money: A Critique of Rawls, Piketty and Other Redistributionists (2018). Ein skýrslan er fyrir fjármálaráðuneytið, Foreign Factors in the 2008 Bank Collapse (2018). Hann er ritstjóri Safns til sögu kommúnismans, ritraðar Almenna bókafélagsins um alræðisstefnu, en nýjasta bókin í þeirri ritröð er Til varnar vestrænni menningu: Ræður sex rithöfunda 1950–1958. Árin 2017 og 2018 birtust eftir hann þrjár ritgerðir á ensku um frjálshyggju á Íslandi, Liberalism in Iceland in the Nineteenth and Twentieth Centuries, Anti-Liberal Narratives about Iceland 1991–2017 og Icelandic Liberalism and Its Critics: A Rejoinder to Stefan Olafsson.  

RSS straumur: RSS straumur

Nýlegar athugasemdir