Færslur fyrir júní, 2025

Föstudagur 20.06 2025 - 23:02

Mannerheim

Fáir Norðurlandabúar hafa átt ævintýralegri ævi en Carl Gustaf Mannerheim, en nýlega kom út á ensku ágæt ævisaga hans eftir Henrik Meinander. Hann fæddist árið 1867 og var sonur sænskumælandi greifa í Finnlandi, sem þá laut Rússakeisara. Mannerheim gekk í þjónustu keisarans og varð lífvörður ekkjudrottningarinnar, sem var dönsk konungsdóttir og bar þá nafnið Dagmar. […]

Föstudagur 20.06 2025 - 23:01

Ógildar undirskriftir?

Síðustu daga sína á bandarískum forsetastól náðaði Joe Biden fjölda manns, þar á meðal son sinn Hunter og embættismenn, sem stjórnað höfðu viðbrögðum við heimsfaraldrinum 2020-2021. En margar undirskriftir Bidens þessa daga voru gerðar með sjálfvirkum penna (autopen), svo að hann kom hvergi nærri. Jafnframt var forsetinn orðinn elliær og vissi sjaldnast sjálfur, hvað hann […]

Föstudagur 20.06 2025 - 23:00

Tvö skólabókardæmi í fjölmiðlun

Ef fjölmiðlun er kennd af metnaði hér á landi hafa síðustu misseri bæst við tvö skólabókardæmi um óeðlileg vinnubrögð. Annað er hvernig bandarískir fjölmiðlamenn reyndu að leyna því eftir megni að Joe Biden Bandaríkjaforseti væri orðinn elliær. Hann kom ekki einu sinni leikaranum heimsfræga George Clooney fyrir sig. Nú upplýsa fjölmiðlamenn í þremur nýjum bókum […]

Föstudagur 20.06 2025 - 22:59

Búdapest, maí 2025

Á ráðstefnu í Búdapest 13. maí 2025 rifjaði ég upp að ég hefði í æsku háð margar kappræður við íslenska ungkommúnista. Lauk ég þá ræðum mínum jafnan á vísuorðum eftir ungverska skáldið Sàndor Petöfi, sem hljóða svo í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar: Upp nú lýður, land þitt verðu, loks þér tvíkost boðinn sérðu, þjóðar frelsi, þrældóms […]

Höfundur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.


Nýjustu bækur hans eru Twenty Four Conservative-Liberal Thinkers, sem hugveitan New Direction í Brüssel gaf út í tveimur bindum í árslok 2020, Bankahrunið 2008 og Communism in Iceland, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gaf út árið 2021, og Landsdómsmálið, sem Almenna bókafélagið gaf út í desember 2022. Hann hefur gefið út átta bókarlangar skýrslur á ensku. Sjö eru fyrir hugveituna New Direction í Brüssel: The Nordic Models og In Defence of Small States (2016); Lessons for Europe from the 2008 Icelandic Bank Collapse, Green Capitalism: How to Protect the Environment by Defining Property Rights og Voices of the Victims: Towards a Historiography of Anti-Communist Literature (2017); Why Conservatives Should Support the Free Market og Spending Other People’s Money: A Critique of Rawls, Piketty and Other Redistributionists (2018). Ein skýrslan er fyrir fjármálaráðuneytið, Foreign Factors in the 2008 Bank Collapse (2018). Hann er ritstjóri Safns til sögu kommúnismans, ritraðar Almenna bókafélagsins um alræðisstefnu, en nýjasta bókin í þeirri ritröð er Til varnar vestrænni menningu: Ræður sex rithöfunda 1950–1958. Árin 2017 og 2018 birtust eftir hann þrjár ritgerðir á ensku um frjálshyggju á Íslandi, Liberalism in Iceland in the Nineteenth and Twentieth Centuries, Anti-Liberal Narratives about Iceland 1991–2017 og Icelandic Liberalism and Its Critics: A Rejoinder to Stefan Olafsson.  

RSS straumur: RSS straumur

Nýlegar athugasemdir