Færslur fyrir janúar, 2026

Laugardagur 03.01 2026 - 15:37

Tvær vísur eftir nafna mína

Hátíðarkvöldverður Þjóðmála árið 2025 var haldinn í Hvalasafninu úti á Granda 20. nóvember, og ávarpaði ég samkomuna. Kvaðst ég kunna vel við mig innan um hvalina, því að ég hefði tekið upp þeirra sið. Ég dveldist á Íslandi á sumrin og á suðlægum slóðum á veturna. Ég sagðist eiga marga nafna á Íslandi, því að […]

Laugardagur 03.01 2026 - 15:36

Gamanmál á hátíðarkvöldverði

Á árlegum hátíðarkvöldverði Þjóðmála, sem haldinn var í Hvalasafninu 20. nóvember 2025, hélt ég ræðu kvöldsins. Þegar vín var borið fram, minnti ég á þau orð Tómasar Guðmundssonar, að það mætti áfengið eiga, að það gerði engum manni mein að fyrra bragði. Ég vitnaði til mótvægis í Freymóð Jóhannsson listmálara, sem sagði: „Ekki drekk ég, […]

Laugardagur 03.01 2026 - 15:34

Háskólanum til skammar

Það var Háskólanum til skammar, að rektor hans og Háskólaráð skyldu ekki fordæma það, þegar nokkrir kennarar og nemendur hans ruddust 6. ágúst inn á málstofu í Háskólanum um lífeyrismál og gervigreind. Gerði hópurinn hróp að fyrirlesaranum, prófessor Gil Epstein, og fundarstjóranum, prófessor Gylfa Zoëga, svo að ekki heyrðist mannsins mál. Eftir að á þessu […]

Laugardagur 03.01 2026 - 15:29

Háskóli eða bergmálshellir?

Mér var fyrir skömmu bent á lokaritgerð í sagnfræði, sem Þorgrímur Kári Snævarr samdi í Háskóla Íslands haustið 2021 undir umsjón prófessors Vals Ingimundarsonar, Afneitunareyjan: Þróun íslenskrar loftslagsumræðu frá níunda áratugnum til okkar daga. Þar erum við Davíð Oddsson og Egill Helgason sagðir „afneitunarsinnar“ um loftslagsbreytingar. Því fer þó fjarri, að ég afneiti loftslagsbreytingum. Ég […]

Laugardagur 03.01 2026 - 15:29

Íslam og einstaklingsfrelsi

Á ráðstefnu Mont Pelerin samtakanna í Marrakesh í Marokkó, sem ég sat á dögunum, var rætt um íslam og einstaklingsfrelsi, og kom þar margt fróðlegt fram. Múslimar áttu sinn blómatíma á síðmiðöldum og stóðu þá framar Evrópuþjóðunum um menningu. Spekingarnir Avicenna (Ibn Sina), Averroes (Ibn Rushd) og Ibn Khaldun báru hróður íslams víða. Síðan snerist […]

Laugardagur 03.01 2026 - 15:28

Marrakesh, október 2025

Getur íslam farið saman við einstaklingsfrelsi? Mont Pelerin samtökin eru alþjóðlegt málfundafélag frjálshyggjumanna, og um þetta var rætt á ráðstefnu þeirra í Marrakesh í Marokkó 7.–10. október 2025. Ekki skal vitna beint í ræðumenn á fundum samtakanna, en ég get sagt frá eigin brjósti, að ég tel reginmun á höfundum og sögulegri þróun kristni og […]

Laugardagur 03.01 2026 - 15:26

Hægrið og vinstrið

Svo virðist sem hægrið og vinstrið séu hvort tveggja að umhverfast. Hægrið studdi áður fyrr fjórfrelsið, sem Evrópusambandið var stofnað utan um, óhindrað flæði fjármagns, vöru, þjónustu og fólks yfir landamæri. En nú eru hefðbundnir hægri flokkar í Evrópu að láta undan síga fyrir flokkum, sem vilja takmarka innflutning fólks, aðallega frá múslimaríkjum, en fólk […]

Laugardagur 03.01 2026 - 15:25

Hvernig var Snorri í sjón?

Norski listmálarinn Christian Krogh myndskreytti norska útgáfu Heimskringlu árið 1899, og hefur teikning hans af Snorra sem gildvöxnum, þunnhærðum og skeggjuðum gengið aftur í mörgum bókum. En Krogh var að hæðast að lesendum. Mynd hans af Snorra var sjálfsmynd. Snorri hans var gerður nauðalíkur Krogh sjálfum. Helgi Þorláksson prófessor hefur hins vegar velt fyrir sér, […]

Laugardagur 03.01 2026 - 15:24

The Seismic Shift in the Right

The Right came into being as a defence of time-tested practices, not as a demand for the reconstruction of society. In 1689, John Locke argued for limited government in response to the attempts by the Stuart kings to establish absolutism. His idea of a social contract was not new. In 1014, the Anglo-Saxon king Aethelred the Unready […]

Laugardagur 03.01 2026 - 15:23

The Seismic Shift in the Left

The last few years have seen a seismic shift in the traditional Left and Right, both in Europe and North America. The Left used to stand for socialism. In the 1920s, this meant the abolition of private property rights to the means of production and hence the end of ‘exploitation’ of the working class by […]

Höfundur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.


Nýjustu bækur hans eru Twenty Four Conservative-Liberal Thinkers, sem hugveitan New Direction í Brüssel gaf út í tveimur bindum í árslok 2020, Bankahrunið 2008 og Communism in Iceland, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gaf út árið 2021, og Landsdómsmálið, sem Almenna bókafélagið gaf út í desember 2022. Hann hefur gefið út átta bókarlangar skýrslur á ensku. Sjö eru fyrir hugveituna New Direction í Brüssel: The Nordic Models og In Defence of Small States (2016); Lessons for Europe from the 2008 Icelandic Bank Collapse, Green Capitalism: How to Protect the Environment by Defining Property Rights og Voices of the Victims: Towards a Historiography of Anti-Communist Literature (2017); Why Conservatives Should Support the Free Market og Spending Other People’s Money: A Critique of Rawls, Piketty and Other Redistributionists (2018). Ein skýrslan er fyrir fjármálaráðuneytið, Foreign Factors in the 2008 Bank Collapse (2018). Hann er ritstjóri Safns til sögu kommúnismans, ritraðar Almenna bókafélagsins um alræðisstefnu, en nýjasta bókin í þeirri ritröð er Til varnar vestrænni menningu: Ræður sex rithöfunda 1950–1958. Árin 2017 og 2018 birtust eftir hann þrjár ritgerðir á ensku um frjálshyggju á Íslandi, Liberalism in Iceland in the Nineteenth and Twentieth Centuries, Anti-Liberal Narratives about Iceland 1991–2017 og Icelandic Liberalism and Its Critics: A Rejoinder to Stefan Olafsson.  

RSS straumur: RSS straumur

Nýlegar athugasemdir