Á fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar lagði ég til að sveitarfélagið léti af þeirri ætlan að ganga í samtök sem kalla sig Samtök sjávarútvegssveitarfélaga. Stjórn samtakanna er að mestu skipuð harðsvíruðum fylgismönnum kvótakerfisins en formaður samtakanna er Svanfríður Inga Jónasdóttir á Dalvík. Með stofnun samtakanna er einsýnt að verið er að stofna enn eitt vígið til þess að koma […]
Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar eru mjög afgerandi og jákvæð. Fólkið kaus með breytingum og að tryggt verði að auðlindir s.s. fiskveiðiauðlindin verði áfram í eigu þjóðarinnar. Niðurstaðan var þvert á fyrirskipanir tvíeykisins Bjarna Benediktssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, en þeir gáfu út þá línu að frumvarpinu skyldi hafnað. Fólk sá í gegnum röklausan málflutning flokksformannanna til stuðnings […]
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur gefið út þá línu til liðsmanna sinna að þeir eigi að segja nei við nýrri stjórnarskrá í kosningunum 20. október næstkomandi. Hann hefur hins vegar hvorki bent á neina grein í nýju stjórnarskránni sem fer fyrir brjóstið á honum, né rökstutt skoðun sína með einum eða neinum hætti. Hann hefur heldur […]
Elliði Vignisson var um árabil einn harðasti talsmaður algerlega frjáls framsals á veiðiheimildum. Nú er öldin önnur og orðið hefur alger viðsnúningur á skoðunum Elliða til frjáls framsals kvótakerfisins. Ef málið væri ekki jafn alvarlegt og raun ber vitni, og í raun sorglegt, mætti eflaust hlæja að því. Fyrir örfáum árum þegar Elliði taldi að […]
Í vikunni sótti ég fund þingmanna Norðvesturkjördæmis, sem haldinn var fyrir sveitarstjórnarmenn á Norðurlandi vestra. Fundurinn stefndi í það að verða hefðbundinn rétt eins og útvarpsmessa á sunnudagsmorgni, þar sem fátt nýtt gerist. Rætt var um refaveiðar og vegagerð og Guðbjartur flutti sína gamalkunnu predikun um að hér hefði hefði orðið hrun í boði Sjálfstæðisflokksins. Boðskapurinn […]
Með hruni hefði mátt búast við að kerfi, sem brugðust, væru endurskoðuð í stað þess að þau væru stagbætt. Eitt þeirra kerfa, sem brást algerlega, eru lífeyrissjóðirnir, sem studdu við og fjármögnuðu útrásarvíkingana. Tap lífeyrissjóðanna var gífurlegt á samkrullinu við fjárglæframennina og ekki sér fyrir endann á því hversu mikið tapið verður. Það ætti að […]