Færslur fyrir júlí, 2023

Laugardagur 08.07 2023 - 13:42

Níðvísan þjónaði tilgangi

Hér hefur ég fyrir nokkru varpað fram þeirri tilgátu, að Snorri Sturluson hafi samið söguna um landvættirnar í því skyni að telja þá Hákon konung Hákonarson og Skúla jarl Bárðarson af því að senda herskip til Íslands eins og þeir hugðust gera árið 1220 eftir skærur norskra kaupmanna og íslenskra goða, sem vildu setja á […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:41

Sögulegar deilur

Tveir kunnustu menntamenn Ítala á tuttugustu öld voru heimspekingurinn Benedetto Croce og hagfræðingurinn Luigi Einaudi. Báðir voru þeir frjálshyggjumenn, en þeir deildu um, hvað í því fælist. Croce var lærisveinn Hegels og taldi sögu mannkyns sögu heimsandans, sem kæmist smám saman til vitundar um sjálfan sig og yrði frjáls. Sagan væri saga frelsisins: í upphafi […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:39

Refsað fyrir ráðdeild?

Maður var nefndur Luigi Einaudi. Hann fæddist árið 1874, lauk hagfræðiprófi frá Torino-háskóla og gerðist prófessor þar. Hann varð snemma einn af kunnustu hagfræðingum Ítala og skipaður öldungadeildarþingmaður í konungsríkinu árið 1919. Hann hafði verið eindreginn andstæðingur fasista og varð eftir ósigur þeirra seðlabankastjóri Ítalíu í ársbyrjun 1945 og fjármálaráðherra tveimur árum síðar. Kom hann […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:37

Stighækkandi tekjuskattur

Árin 1494–1509 háði Flórens kostnaðarsamt stríð við Pisu. Ítalski sagnfræðingurinn Francesco Guicciardini sagði frá fundi í Æðsta ráði Flórens um, hvernig skipta skyldi kostnaðinum. Einn af þeim, sem tóku til máls, mælti: „Byrðarnar, sem lögð er á fátæklinginn og ríka manninn, eru taldar jafnar, þegar þeir leggja báðir fram tíunda tekna sinna. En þótt tíundi […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:35

Sjötugur

Það er fagnaðarefni, að ég skuli verða sjötugur 19. febrúar 2023. Hitt væri óneitanlega miklu verra, að verða ekki sjötugur. Annars er lífið undarlegt ferðalag: Við mælum það í dögum, þeim tíma, sem það tekur jörðina að snúast í kringum sjálfa sig, og árum, þeim tíma, sem það tekur jörðina að þeysast í kringum sólina. […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:34

Reykjavík, janúar 2023

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands hélt fund 16. janúar 2023 um bók mína, Landsdómsmálið. Hafði ég framsögu, en Ögmundur Jónasson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, veitti andsvör. Hann sagði ýmislegt fróðlegt. Geir H. Haarde var sakfelldur fyrir að hafa ekki sett yfirvofandi bankahrun árið 2008 á dagskrá ráðherrafunda þrátt fyrir ákvæði stjórnarskrárinnar um, að halda skyldi […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:33

Lundúnir, janúar 2023

Á ráðstefnu evrópskra íhaldsflokka í Lundúnum 14. janúar 2023 var ég beðinn um að halda tölu. Ég lýsti því þar, hvernig Íslendingar hafa leyst úr þremur erfiðum verkefnum. Hið fyrsta var að tryggja nothæfa peninga. Helstu hlutverk peninga eru að vera verðmælir annars vegar og gjaldmiðill hins vegar. Gallinn við mikla verðbólgu til langs tíma, […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:32

Sérstaða og samstaða: Tveir ásar Íslandssögunnar

Landnemarnir úr Noregi höfðu ekki búið lengi í þessu landi, þegar þeir tóku að líta á sig sem sérstaka þjóð. Sighvatur skáld Þórðarson orti í Austurfararvísum um hin „íslensku augu“, sem hefðu dugað sér vel. Um svipað leyti, árið 1022, gerðu Íslendingar sinn fyrsta milliríkjasamning, og var hann við Norðmenn um gagnkvæman rétt þjóðanna. Segja […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:25

Stjórnmálamaðurinn Hannes Hafstein

Um aldamótin 1900 var Ísland dönsk hjálenda, eins og það var kallað (biland). Það var þá eitt fátækasta land Vestur-Evrópu. Hér vantaði sárlega vegi, brýr, hafnir og vita. Landsmenn bjuggu flestir í köldum, dimmum, saggasömum torfbæjum. Útlendir togarar ösluðu upp að ströndum og létu vörpur sópa, en Íslendingar stunduðu af vanefnum sjó á litlum bátum, […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:22

Atvik úr bankahruninu

Í nýrri bók minni um landsdómsmálið segi ég frá ýmum minnisstæðum atvikum úr bankahruninu. Davíð Oddsson seðlabankastjóri gekk á fund ríkisstjórnarinnar 30. september 2008 til að vara við bankahruni. Á leiðinni út mætti hann þvögu af fréttariturum. Í miðjum hópnum var Sævar Cielselski, sem lét ófriðlega, en hann taldi ríkið hafa svikið sig um bætur. […]

Höfundur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.


Nýjustu bækur hans eru Twenty Four Conservative-Liberal Thinkers, sem hugveitan New Direction í Brüssel gaf út í tveimur bindum í árslok 2020, Bankahrunið 2008 og Communism in Iceland, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gaf út árið 2021, og Landsdómsmálið, sem Almenna bókafélagið gaf út í desember 2022. Hann hefur gefið út átta bókarlangar skýrslur á ensku. Sjö eru fyrir hugveituna New Direction í Brüssel: The Nordic Models og In Defence of Small States (2016); Lessons for Europe from the 2008 Icelandic Bank Collapse, Green Capitalism: How to Protect the Environment by Defining Property Rights og Voices of the Victims: Towards a Historiography of Anti-Communist Literature (2017); Why Conservatives Should Support the Free Market og Spending Other People’s Money: A Critique of Rawls, Piketty and Other Redistributionists (2018). Ein skýrslan er fyrir fjármálaráðuneytið, Foreign Factors in the 2008 Bank Collapse (2018). Hann er ritstjóri Safns til sögu kommúnismans, ritraðar Almenna bókafélagsins um alræðisstefnu, en nýjasta bókin í þeirri ritröð er Til varnar vestrænni menningu: Ræður sex rithöfunda 1950–1958. Árin 2017 og 2018 birtust eftir hann þrjár ritgerðir á ensku um frjálshyggju á Íslandi, Liberalism in Iceland in the Nineteenth and Twentieth Centuries, Anti-Liberal Narratives about Iceland 1991–2017 og Icelandic Liberalism and Its Critics: A Rejoinder to Stefan Olafsson.  

RSS straumur: RSS straumur

Nýlegar athugasemdir