Færslur fyrir júlí, 2023

Laugardagur 08.07 2023 - 14:02

Sjómannadagsræða Kára Stefánssonar

Þessi ræða er ekkert annað en lýðskrum. Ég skal reyna að skýra í örstuttu máli, hvers vegna kvótakerfið er í senn réttlátt, arðbært og sjálfbært. Fiskihagfræðin og raunar auðlindahagfræði almennt kennir okkur, að ótakmarkaður (ókeypis) aðgangur að takmarkaðri auðlind hefur í för með sér ofnýtingu hennar. Á einhvern hátt varð að takmarka aðgang að fiskistofnunum á Íslandsmiðum, […]

Laugardagur 08.07 2023 - 14:00

Amsterdam, apríl 2023

Fyrsta kauphöll heims, sem enn starfar, var stofnuð í Amsterdam árið 1602. Hún hafði lengi aðsetur í reisulegu húsi við Oudebrugsteeg (Gömlubrúarstíg), og þar flutti ég fyrirlestur 20. apríl 2023 í fallegum fundarsal stjórnar kauphallarinnar. Átti það vel við, því að ég varði þar kapítalismann fyrir rökum jöfnunarsinna. Fremstur þeirra fræðilega var bandaríski heimspekingurinn John […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:58

París, apríl 2023

Það var ekki ónýtt að feta í fótspor þjóðsagnahetjunnar Sæmundar fróða í Svartaskóla, Sorbonne, í París, nema hvað þar flutti ég fyrirlestur 19. apríl 2023, en var ekki aðeins að afla fróðleiks eins og Sæmundur forðum. Fyrirlestur minn hafði meðal annars að geyma gagnrýni á kenningar franska hagfræðingsins Tómasar Pikettys, átrúnaðargoðs vinstri manna. Piketty hefur ekki […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:56

Lundúnir, apríl 2023

Í málstofu í Lundúnum 18. apríl var mér falið að ræða um hlutverk frumkvöðla á frjálsum markaði. Þegar Karl Marx skipti á nítjándu öld fólki í tvær stéttir, borgara og öreiga, horfði hann fram hjá þeim, sem lifa af að selja þekkingu sína, kunnáttu og hugvit frekar en hrátt vöðvaafl, svo sem rafvirkjum, tölvunarfræðingum, læknum […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:55

Brúarstæði, apríl 2023

Hið forna heiti borgarinnar Bristol í Englandi var Brycgstow, sem merkir Brúarstæði. Hún kemur nokkuð við sögu Íslendinga á fimmtándu öld, þegar Englendingar, ekki síst frá Bristol, stunduðu fiskveiðar og verslun við Íslandsstrendur. Árið 1484 voru 48 Íslendingar skráðir í borginni, og nokkrir kaupmenn þar versluðu jöfnum höndum við Ísland og Portúgal. Þessi fjöruga verslun […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:51

Höfn, apríl 2023

Næststærsta borg Portúgals, sem Fjölnismenn kölluðu Hafnarland, er Porto, Höfn. Miðbærinn við sjóinn er fallegur og notalegur. Hér var ég beðinn að segja nokkur orð 15. apríl um æskilegustu þróun Evrópusambandsins. Ég kvað stofnun þess hafa verið af hinu góðu. Frakkar og Þjóðverjar smíðuðu plóga úr sverðum og eins auðvelt varð að fara yfir landamæri […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:49

Ný sýn á gamalt mál

Hér hef ég tvisvar vikið að því, þegar fulltrúi Svía í friðarsamningum við Dani í Kíl í janúar 1814, Wetterstedt barón, virtist hafa trúa því, sem danski fulltrúinn, Edmund Bourke, sagði honum, að Grænland, Ísland og Færeyjar hefðu aldrei tilheyrt Noregi. Þessar Atlantshafseyjar hefðu þess vegna verið undanskildar, þegar Danir létu Noreg af hendi við […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:47

Split, apríl 2023

Á ráðstefnu evrópskra íhaldsflokka í Split í Króatíu 31. mars og 1. apríl flutti ég fyrirlestur um frjálslynda íhaldsstefnu í Evrópu. Ég velti því þar fyrir mér, hvenær Evrópa hefði orðið til í sögulegum skilningi. Það hefði aðallega gerst í tveimur áföngum: árið 732, þegar Karl Martel hratt árás Serkja við Tours í Suður-Frakklandi, og […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:46

Danskur þjóðarandi

Á nítjándu öld minnkaði Danmörk niður í lítið þjóðríki, eftir að Danakonungur hafði misst konungsríkið Noreg, sem Svíar fengu árið 1814, og hertogadæmin Slésvík og Holtsetaland, sem Þjóðverjar lögðu undir sig árið 1864. Danir brugðust við með því að efla með sér þjóðarvitund undir sterkum áhrifum frá sálmaskáldinu og skólamanninum Nikolaj F. S. Grundtvig, sem […]

Laugardagur 08.07 2023 - 13:44

Landsfeður, leiðtogar, fræðarar, þjóðskáld

Anthony D. Smith, sem var sérfræðingur um þjóðernismál, skilgreindi þjóð sem heild með eigið nafn og afmarkað landsvæði, þar sem íbúar deila arfleifð minninga, goðsagna, tákna, verðmæta og hefða, halda uppi sérstakri menningu og fara eftir sömu lögum og venjum. Samkvæmt því voru Íslendingar þegar á þjóðveldisöld sérstök þjóð. Smith sagði einnig, þegar um þjóðlega […]

Höfundur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.


Nýjustu bækur hans eru Twenty Four Conservative-Liberal Thinkers, sem hugveitan New Direction í Brüssel gaf út í tveimur bindum í árslok 2020, Bankahrunið 2008 og Communism in Iceland, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gaf út árið 2021, og Landsdómsmálið, sem Almenna bókafélagið gaf út í desember 2022. Hann hefur gefið út átta bókarlangar skýrslur á ensku. Sjö eru fyrir hugveituna New Direction í Brüssel: The Nordic Models og In Defence of Small States (2016); Lessons for Europe from the 2008 Icelandic Bank Collapse, Green Capitalism: How to Protect the Environment by Defining Property Rights og Voices of the Victims: Towards a Historiography of Anti-Communist Literature (2017); Why Conservatives Should Support the Free Market og Spending Other People’s Money: A Critique of Rawls, Piketty and Other Redistributionists (2018). Ein skýrslan er fyrir fjármálaráðuneytið, Foreign Factors in the 2008 Bank Collapse (2018). Hann er ritstjóri Safns til sögu kommúnismans, ritraðar Almenna bókafélagsins um alræðisstefnu, en nýjasta bókin í þeirri ritröð er Til varnar vestrænni menningu: Ræður sex rithöfunda 1950–1958. Árin 2017 og 2018 birtust eftir hann þrjár ritgerðir á ensku um frjálshyggju á Íslandi, Liberalism in Iceland in the Nineteenth and Twentieth Centuries, Anti-Liberal Narratives about Iceland 1991–2017 og Icelandic Liberalism and Its Critics: A Rejoinder to Stefan Olafsson.  

RSS straumur: RSS straumur

Nýlegar athugasemdir