Laugardagur 18.01.2025 - 20:58 - Rita ummæli

Snorri og Malthus

Áður hef ég vikið að því, að í HeimskringluSnorra Sturlusonar er að finna sömu hugmynd og Adam Smith batt í kerfi, að frjáls viðskipti væru báðum aðilum í hag. Sænskir bændur vildu versla við nágranna sína í Noregi, en eitt sinn gátu þeir það ekki vegna hernaðar. Rögnvaldur jarl Úlfsson taldi „upp hvert vandræði Vestur-Gautum var að því að missa þeirra hluta allra af Noregi er þeim var árbót í“, eins og segir í 80. kafla Ólafs sögu helga. Menn kaupa það, sem þeim er „árbót í“. Ég hef einnig bent á, að í ræðu Einars Þveræings, sem Snorri samdi, er að finna sömu hugmynd og Karl R. Popper gerði að aðalatriði í stjórnmálaheimspeki sinni: úrlausnarefnið sé að bregðast við misjöfnum valdsmönnum, eins og segir í 125. kafla Ólafs sögu helga.

Fleiri merkilegum hugmyndum bregður fyrir í Heimskringlu. Snorri segir í 43. kafla Ynglinga sögu frá þeim sið Svía í hallæri að kenna konungum um og drepa þá. Hann bætir við: „Þeir er vitrari voru af Svíum fundu þá að það olli hallærinu að mannfólkið var meira en landið mætti bera en konungur hafði engu um valdið.“ Þetta er sú kenning, sem Thomas Malthus setti fram á öndverðri nítjándu öld: að hallæri yrði, þegar mannfólkið væri meira en land mætti bera. Þessi kenning átti lengi við. Ísland var til dæmis í eins konar Malthusar-gildru í þúsund ár. Færi fólksfjöldinn fram úr um fimmtíu þúsund varð hallæri, sem leiddi til fólksfækkunar. Það var ekki fyrr en kapítalisminn kom til sögu, að Íslendingar losnuðu eins og aðrar þjóðir úr þessari gildru. Kapítalisminn er sú fróðakvörn, sem malar auð og frið.

(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 18. janúar 2025.)

Flokkar: Óflokkað

«
»

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og fimm? Svar:

Höfundur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.


Nýjustu bækur hans eru Twenty Four Conservative-Liberal Thinkers, sem hugveitan New Direction í Brüssel gaf út í tveimur bindum í árslok 2020, Bankahrunið 2008 og Communism in Iceland, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gaf út árið 2021, og Landsdómsmálið, sem Almenna bókafélagið gaf út í desember 2022. Hann hefur gefið út átta bókarlangar skýrslur á ensku. Sjö eru fyrir hugveituna New Direction í Brüssel: The Nordic Models og In Defence of Small States (2016); Lessons for Europe from the 2008 Icelandic Bank Collapse, Green Capitalism: How to Protect the Environment by Defining Property Rights og Voices of the Victims: Towards a Historiography of Anti-Communist Literature (2017); Why Conservatives Should Support the Free Market og Spending Other People’s Money: A Critique of Rawls, Piketty and Other Redistributionists (2018). Ein skýrslan er fyrir fjármálaráðuneytið, Foreign Factors in the 2008 Bank Collapse (2018). Hann er ritstjóri Safns til sögu kommúnismans, ritraðar Almenna bókafélagsins um alræðisstefnu, en nýjasta bókin í þeirri ritröð er Til varnar vestrænni menningu: Ræður sex rithöfunda 1950–1958. Árin 2017 og 2018 birtust eftir hann þrjár ritgerðir á ensku um frjálshyggju á Íslandi, Liberalism in Iceland in the Nineteenth and Twentieth Centuries, Anti-Liberal Narratives about Iceland 1991–2017 og Icelandic Liberalism and Its Critics: A Rejoinder to Stefan Olafsson.  

RSS straumur: RSS straumur

Nýlegar athugasemdir