Ekki er hún gæfuleg leiðin sem Viðreisn býður landsmönnum upp á til að tryggja efnahagslegan stöðugleika, en leiðin er að rígbinda gengi íslensku krónunnar við gengi evrunnar, með svokölluðu myntráði. Hugmyndin er að ríkið festi í lög að ætíð sé hægt að skipta íslensku krónunni fyrir evru á ákveðnu föstu gengi Þessi leið hefur verið reynd […]
Samráðsvettvangur um aukna hagsæld á Íslandi er „þverpólitískur“ vettvangur undir forystu Rögnu Árnadóttur, sem ætlað er að stuðla að upplýstri umræðu sem á að hafa það að markmiði að tryggja hagsæld Íslendinga til lengri tíma litið. Skýrsla 6 sérfræðinga til Samráðsvettvangs um aukna hagsæld, um hvernig hægt sé að einfalda skattkerfið og gera það skilvirkara, […]
Ég lagði leið mína óvænt í Norræna húsið á „Fund fólksins“. Tilefnið var m.a. mjög áhugaverður og fræðandi fundur með Ragnari Þór Ingólfssyni og Ástu Dís Guðjónsdóttur frambjóðendum Dögunar um lífeyrisjóðakerfið. Á „Fundi fólksins“ varð ég þess fljótt áskynja að Dögun og fleiri flokkar sem hyggjast bjóða fram í næstu Alþingiskosningum voru ekki einungis útilokaðir […]
Fyrirbærið, RNA, Rannsóknasetur um nýskökpun og hagvöxt, sem stýrt er af; Ragnari Árnasyni, Hannesi Hólmsteini og Birgi Þór Runólfssyni gengur meira og minna út á að sanna brauðmolakenninguna. Kenningin gengur út á að allur almenningur muni að lokum njóta góðs af mikilli auðsöfnun fárra. Helsti vandinn sem RNA stendur fram fyrir er að kenningin hefur hvergi […]
Í þjóðmálaþættinum Þjóðbraut var opinskátt viðtal við rektor Háskólans á Bifröst, Vilhjálm Egilsson. Vilhjálmur hefur um áratugaskeið verið í innsta valdahring Sjálfstæðisflokksins. Hann var þingmaður flokksins, ráðuneytisstjóri, framkvæmdastjóri SA og nú háskólarektor. Í þættinum opnar hann glögga sýn inn í rotna ákvarðanatöku um hvaða sjónarmið séu sett í forgrunn þegar teknar eru ákvarðanir af ráðherrum […]
Logi Bergmann fréttamaður á Stöð 2 skrifaði gagnrýna grein um landann í sumar, sem var á þá leið að hann væri orðinn leiður á því að það væri of mikið af gaurum á Íslandi sem sæju ekki björtu hliðarnar á tilverunni. Gaurarnir hans Loga voru með það á hreinu að glasið væri ekki bara nánast tómt, […]
Ég hef nokkuð furðað mig á þeirri kröfu Sjálfstæðismanna að félagsmálaráðherra eigi að segja af sér. Krafan virðist eiga sér nokkurn hljómgrunn innan Framsóknarflokksins, þar sem hvorki formaður né forsætisráðherra hafa komið ráðherra sínum til varna. Ekki er málið að mér þyki mikið til verka félagsmálaráðherrans koma, en hún hefur verið drjúg við að færa […]
Vaxtaokrið sem viðgengst á Íslandi er megin vandi almennings, sem er að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Í stað þess að taka á meininu, þá boðuðu oddvitar ríkisstjórnarinnar í dag sértæka plástra á eina af birtingarmyndum meinsins. Augljóst er að aðgerðirnar snerta aðeins lítinn hluta fólks sem á í vanda á húsnæðismarkaðnum og með […]
Innanríkisráðherra hefur haldið því fram að ÓUMFLÝJANLEGT sé að líta til einkaframkvæmda ef það eigi að fara í lágmarks viðhald á vegum og ráðast vegabætur! Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins hljóp yfir þá staðreynd að einkaaðilar sjá nú þegar um alla vegagerð á landinu og að aðeins lítill hluti af því fé sem ríkið innheimir til […]
Umfjöllun fréttastofu RÚV, í kvöldfréttum sjónvarpsins um umdeilda aðgerð gegn offitu var einkar vönduð. Andstæð sjónarmið fengu að vegast þar á. Rætt var bæði við talsmenn aðgerðanna og sömuleiðis fengu að heyrast efasemdaraddir um ágæti offituaðgerðanna. Gekk fréttastofan svo langt að benda lækninum á að hann hefði persónulegra hagsmuna að gæta! Þessi gagnrýna fréttamennska RÚV […]